Opna íslenskan stað í Kaupmannahöfn

Eigendur staðarins Maika‘i, Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan …
Eigendur staðarins Maika‘i, Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Eigendur staðarins Maika‘i, Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir, vinna nú að opnun „pop up“-staðar í Kaupmannahöfn. Hjónin, sem í daglegu tali eru kölluð Áki og Metta, selja acai-skálar sem notið hafa mikilla vinsælda hérlendis sem erlendis.

Að sögn Áka var það draumur þeirra hjóna að opna stað úti í Kaupmannahöfn og varð draumurinn að veruleika eftir að þau gerðu tímabundinn samning við Frederiksberg-verslunarmiðstöðina, í nágrenni við Viðskiptaskóla Kaupmannahafnar, CBS.

Áki segir tímabundna opnun staðarins vera leið til að dýfa tánni í laugina og sjá hvernig rekstur gengur fyrir utan landsteinana. Ef vel gangi, sjái þau fram á frekari rekstur erlendis.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert