Meðlætið sem tryllir mannaskapinn

Það er meistari Helga Magga sem á heiðurinn að þessu meðlæti eða millimáli.

„Eins og margir vita er brokkólí algjör ofurfæða, ríkt af A, C, E vítamínum, ásamt járni og fólinsýru. Brokkólí inniheldur einnig prótein sem er alltaf kostur. Ég gufusýð oft brokkólí í 7-10 mínútur og hef sem meðlæti með mat því það er auðveldara að borða það þannig heldur en hrátt, sérstaklega fyrir börn en þessir bitar eru einnig í algjöru uppáhaldi, einfalt og gott meðlæti með öllum mat.“

  • Brokkólíbitar með stökkum osti
  • 400 g brokkólí / spergilkál
  • 100 g rifinn mozzarella ostur frá Gott í matinn

Aðferð

  1. Byrjið á að skera brokkólíið niður í hæfilega stóra bita og gufusjóðið í um 8 mínútur.
  2. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu og dreifið úr brokkólíinu.
  3. Notið glas og þrýstið botninum á hvern bita til að fletja brokkólíið aðeins út svo osturinn tolli betur á hverjum bita.
  4. Dreifið rifnum osti yfir brokkólíbitana og bakið við 200°C í um 20 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.

Fyrir þau sem að telja macros fylgir skráning næringargilda með.

  • Næring í 100 g:
  • Kolvetni: 2,3 g
  • Prótein: 14,5 g
  • Fita: 7,2 g
  • Trefjar: 4,1 g

Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Brokkolí bitar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert