Eldum rétt nú fáanlegt í Hagkaup

Þau tíðindi berast úr herbúðum Eldum rétt að nú sé hægt að fá rétti frá þeim í verslunum Hagkaups en hingað til hefur eingöngu verið hægt að fá matarpakka frá fyrirtækinu senda heim. Jafnframt verður nú hægt að kaupa eingöngu einn rétt í einu en fram til þessa hefur þurft að kaupa 2-5 rétti.

Við erum gríðarlega spennt að fá þessa nýju viðbót í vöruúrval Hagkaups. Fólk er sífellt að leita leiða til að einfalda eldunina heima hjá sér. Eldum rétt hefur slegið í gegn á síðustu árum og nú kemur þessi spennandi nýjung þar sem þú getur gripið einn af vinsælustu réttum þeirra með þér í næstu Hagkaupsferð.  Ekkert að panta, bara að mæta.  Ég held að þetta eigi eftir að slá í gegn hjá okkar viðskiptavinum,segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups

„Við höfum fengið margar fyrirspurnir í gegnum tíðina hvort þetta þægilega fyrirkomulag verði ekki aðgengilegt í matvöruverslunum og nú er loksins komið að því. Við munum bjóða viðskiptavinum allra Hagkaupsverslana upp á Einstaka rétti Eldum rétt. Í boði verða nokkrir af vinsælustu réttum okkar frá upphafi. Úrvalið verður fjölbreytt og ferskleikinn í fyrirrúmi þar sem vikulega mun úrvalið breytast“ 

„Í kassanum er að finna hráefni í réttum skömmtum til að reiða fram ljúffenga máltíð. Með þessu fyrirkomulagi er hægt að töfra fram dýrindis máltíð á stuttum tíma úr ferskum og góðum hráefnum. Svo er auðvitað stóri þátturinn í þessu að öll hráefnin koma í réttum skömmtum svo ekkert fer til spillis,“ segir Hrafnhildur Hermannsdóttir, markaðsstjóri Eldum rétt. „Matarpakkarnir okkar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og viðskiptavinum fjölgar stöðugt ár frá ári. Varan okkar er einstök þar sem við bjóðum meðal annars upp á sérútbúnar sósur, kryddblöndur og líklega besta pítubrauð í heimi. Við erum með vöruþróunarteymi sem vinnur alla daga að því að gera fjölbreyttar uppskriftir og girnilegan mat svo landsmenn geti eldað fjölbreyttan mat heima hjá sér. Markmið okkar er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.“

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert