Íslendingar hafa elskað brauðrétti síðan 1974

Íslendingar elska brauðrétti og hafa gert síðan sá fyrsti var …
Íslendingar elska brauðrétti og hafa gert síðan sá fyrsti var kynntur til leiks í Morgunblaðinu 1974. Ljósmynd/Samsett

Hvað er ljúffengara en lostafullt heitt rúllubrauð með bráðnum osti? Nú, eða heitur brauðréttur með brokkolí?

Íslendingar fóru að bjóða upp á heita brauðrétti í veislum í kringum 1980. Mögulega voru einhverjir fyrr á ferð en í Morgunblaðinu 2. mars 1974 er sagt frá afar girnilegum brauðrétti. Rétturinn var talinn heppilegur í teiti sem boðið var í eftir bíóferðir eða leikhús. Í greininni er mælt með því að fólk skeri snittubrauð eða annað franskbrauð eftir endilöngu, taki innan úr brauðunum og smyrji til helminga með smjöri og sinnepi. Sneiðar af spægipylsu eru lagðar ofan á ásamt söxuðum hráum lauk. Þá er tómatsneiðum og sundurskornum ólífum komið fyrir ofan á lauknum. Ofan á þetta voru svo settar þunnar sneiðar af mildum feitum osti. Brauðhelmingarnir voru settir inn í ofn og hitaðir við 225 gráður eða þar til osturinn var bráðinn og brauðið orðið heitt.

Allar götur síðan hefur heitt brauð og rúllubrauð verið arfavinsælt þegar töfra á fram alvöru veislu. Fólk fær vatn í munninn við það eitt að finna lyktina af bráðnum osti. Þetta er ekki ósvipað og gerist í flugvélum. Um leið og fyrsti farþeginn pantar sér heita baguettu með skinku og osti verður öll flugvélin svöng.

Það er hægt að fara ýmsar leiðir til þess að búa til hinn fullkomna brauðrétt. Hér eru tillögur sem gætu hentað í þína veislu:

Heit rúlluterta með aspas og sveppasmurosti

  • 4 rúllutertubrauð
  • 2 dósir sveppasmurostur
  • 1 dós sýrður rjómi 18%
  • 2 dósir sýrður rjómi 10%
  • 500 g skinka
  • 3 litlar dósir aspasbitar
  • 1 msk. grænmetiskraftur
  • 2 pokar rifinn mozzarella-ostur
  • paprikukrydd eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið skinkuna í lita bita og setjið til hliðar.
  2. Þá er sveppaosti, sýrðum rjóma, grænmetiskrafti og aspas hrært saman.
  3. Rúllutertubrauðin eru smurð og þeim rúllað upp og raðað á ofnplötu.
  4. Þau eru smurð með sýrðum rjóma og svo er gott að strá miklum osti yfir.
  5. Gott er að krydda með paprikukryddi. Það gefur líka fallega áferð.

Það þarf að baka brauðið í 40 mínútur við 200 gráður.

Heitur brauðréttur með skinku og brokkolí

Á vefnum gottimatinn.is er að finna margar girnilegar uppskriftir að heitum brauðréttum. Það er ekkert skrýtið þar sem ostur leikur stórt hlutverk ef brauðrétturinn á að vera gómsætur.

  • 12 sneiðar franskbrauð
  • 1 stk. lítill brokkolíhaus
  • 1 stk.paprika
  • 1⁄2 stk.blaðlaukur
  • 250 g skinka
  • 1 stk. piparostur frá MS
  • 1⁄2 stk. Mexíkóostur frá MS
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 100 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
  • ólífuolía
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Skerið skorpuna af brauðinu, brokkolí í munnstóra bita.
  2. Saxið niður papriku og blaðlauk og skerið skinku í teninga.
  3. Steikið brokkolí upp úr ólífuolíu og hellið svo eins og 3 msk. af vatni yfir til að mýkja það aðeins.
  4. Bætið meiri olíu á pönnuna þegar vatnið hefur gufað upp og steikið papriku og blaðlauk með þar til allt fer aðeins að mýkjast.
  5. Saltið og piprið eftir smekk.
  6. Smyrjið eldfast mót að innan með ólífuolíu (eða smjöri) og raðið tvöföldu lagi af brauðsneiðum í botninn.
  7. Hellið þá steiktu grænmetinu jafnt yfir brauðið og dreifið einnig úr skinkunni og búið næst til sósuna.
  8. Hellið um helmingi rjómans á pönnuna og rífið báða kryddostana niður, hrærið þar til báðir hafa bráðnað og bætið þá restinni af rjómanum saman við og hrærið þar til kekkjalaust.
  9. Hellið sósunni yfir brauðið og grænmetið. Stráið vel af rifnum osti yfir allt saman og bakið í 180° heitum ofni í um 20 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.

Þegar fólk útbýr brauðrétti fyrir stóra veislu þá þarf það að muna að veislugestir elska heita brauðrétti.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert