Geggjað kjúklingasalat Lindu Ben

Ljósmynd/Linda Ben

„Hér höfum við æðislega gott og orkumikið kjúklingasalat sem er alveg stútfullt af hollustu,“ segir Linda Ben um þetta geggjaða salat.

„Maður byrjar á því að elda sætu kartöflurnar og sveppina, svo sker maður restina af innihaldsefnunum niður og blandar öllu saman í skál. Kryddar svo með chiliolíu (eða annarri olíu ef maður fílar ekki sterkt), salti og pipar og smá meira af þurrkuðu chili ef vill. Þetta er fljótlegur réttur og bráðhollur, alveg eins og við viljum hafa hlutina.“

Kraftmikið kjúklingasalat

  • 3 foreldaðar kjúklingabringur
  • 1-2 forsoðnar rauðrófur
  • 1/2 sæt kartafla (eða ein lítil)
  • 75 g klettasalat
  • 2 dl bláber
  • 100 g sveppir
  • 1 msk. sólblómafræ
  • 100 g rifinn mozzarella frá Örnu Mjólkurvörum
  • U.þ.b. 2 msk. chiliolía (eða önnur ólífuolía ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt, líka hægt að setja 1 msk chili og 1 msk venjulega olíu)
  • salt og pipar
  • þurrkað chili eftir smekk

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita.
  2. Skerið sætu kartöfluna og sveppina í bita, setjið á smjörpappírsklædda ofnplötu, setjið olíu og salt&pipar yfir. Bakið í u.þ.b. 20 mín. eða þar til kartöflurnar og sveppirnir eru mjúk í gegn.
  3. Skerið kjúklingabringurnar og rauðrófuna niður í bita.
  4. Setjið sætu kartöflurnar, sveppina, kjúklingabringurnar, rauðrófuna, klettasalatið, bláberin, sólblómafræin og rifna mozzarellann í skál. Hellið chiliolíu yfir, kryddið með salti, pipar og chiliflögum (sleppið ef þið viljið ekki hafa salatið sterkt), blandið öllu vel saman og setjið í skálar.
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert