Komdu strigaskónum í sumargírinn

Þetta er rétti tíminn til að dusta rykið af strigaskónum okkar og koma þeim í sumargírinn. Og hér er snjallasta húsráð síðari ára sem við mælum með að leggja á minnið.

Oftar en ekki eru skórnir okkar í fínasta lagi fyrir utan nokkra bletti og ryk sem kann að safnast mjög auðveldlega á hvíta strigaskó. Það finnast ýmsar aðferðir hvernig má uppfæra skítuga skó yfir svo til nýja með því að henda þeim í þvottavélina. Og til að þurrka þá sem best, þá kemur TikTok-arinn Carolina McCauley okkur til bjargar - en Carolina er einn vinsælasti þrifspekúlantinn á samfélagsmiðlinum.

Hún mælir með að festa reimarnar innan á þvottavélalokinu og láta skóna hanga á meðan þurrkarinn klárar sitt verk. Þannig hendast skórnir ekki til og frá, og það fer mun betur um þá á meðan. Sjá betur í myndbroti hér fyrir neðan. 

@carolina.mccauley Do this to dry sneakers without ruining your shoes or dryer 👟😏 #homehacks #laundryhacks #hometips ♬ original sound - Carolina Mccauley - Home Hacks
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert