Landsliðskokkurinn ætlar að grilla lamb á spjóti

Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur ætlar að grilla lamb á spjóti …
Ísak Aron Jóhannsson landsliðskokkur ætlar að grilla lamb á spjóti fyrir Eurovision partíið í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskokkurinn Ísak Aron Jóhannsson er mikill Eurovison-aðdáandi og veit fátt skemmtilegra en að vera boðinn í Eurovision-partí enda vinsæll gestur þar sem hann kemur alltaf með veitingar í partíið. 

„Ég hef alltaf verið mikill Eurovision-aðdáandi eftir að ég sá Sylvíu Nótt og Lordi frá Finnlandi sem sigraði keppnina það ár, svo að sjálfsögðu horfi ég á í ár,“ segir Ísak. Aðspurður segist Ísak alltaf fá einhvern úr fjölskyldunni eða úr vinahópnum til að bjóða sér í Eurovision-partí. „Það er auðvelt að fá boð því ég kem alltaf með veitingarnar,“ segir Ísak og hlær.

Elskar að grilla snemma sumars

Ísak er búinn að ákveða matseðilinn fyrir laugardagskvöldið og er farinn að hlakka til að útbúa kræsingarnar. „Ég ætla að bjóða upp á lambagrillspjót með chimichurri, mér finnst æði að deila mat saman og elska að grilla snemma sumars svo þetta er alveg tilvalið fyrir laugardagskvöldið.“ Uppáhaldspartírétturinn Ísaks er samt eðla en við ákveðin tilefni finnst honum skemmtilegra að vera með eitthvað matarkyns. „Fyrir mér er eðal meira svona spilakvöld réttur, Eurovisionsöngvakeppnin býður upp á meira er stuð og stemningu svo þá er málið að grilla.“

Ísak deilir hér með lesendum uppskriftinni af sínum grillrétti í ár sem á pottþétt eftir að slá í gegn í partíinu. Hér er á ferðinni uppskrift að lambagrillspjóti með dýrðlegri chimichurri sósu þar sem brögðin fá að njóta sín til fulls.

Girnileg lambaspjótin hjá Ísakii Aroni Jóhannssyni landsliðskokki.
Girnileg lambaspjótin hjá Ísakii Aroni Jóhannssyni landsliðskokki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lambagrillspjót gljáð með teriyaki ásamt chimichurri

  • 3 stk.lambamjöðm
  • 2 p flúðasveppir
  • 2 stk. blaðlaukur
  • 3 stk. paprika
  • Salt og olía eftir smekk
  • 1 stk.Kikkoman teriyaki bbq sósa

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja tréspjót í vatn til að þau brenni síður á grillinu, best er að leyfa þeim að vera í vatni í 4 klukkustundir.
  2. Skerið lambamjöðm í þunnar sneiðar.
  3. Skerið grænmeti í munnbitastærðir.
  4. Öllu er velt upp úr salt og olíu og raðað á spjótin eins og fólk vill.
  5. Grillið er hitað vel upp í og setjið síðan spjótin á.
  6. Á mínútu fresti er spjótið grillað með teriyaki bbq sósunni.
  7. Grillið spjótin á blossandi hita þar til þau eru elduð í gegn, u.þ.b. 3 mínútur á hvorri hlið. Viljum hafa þau vel grilluð.

Chimichurri

  • 50 g kóríander
  • 50 g steinselja
  • 2 stk. hvítlauksgeirar
  • 2 stk. rauður chilli, án fræja
  • 10 ml rauðvínsedik
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Zestið af heilli sítrónu
  • 50 ml ólífuolía
  • Sjávarsalt eftir smekk.

Aðferð:

  1. Skerið stilkinn af kóríander og steinselju frá og setjið laufin í mortél eða skál.
  2. Skerið hvítlauk og chilli gróft niður og bætt við ásamt restinni af hráefnum fyrir utan salt. Gott að nota töfrasprota til að blanda hráefnunum saman.
  3. Þessu er öllu blandað vel saman og síðast en ekki síst er sósan bragðbætt með sjávarsalti, best er að salta hana þannig að þú finnir fyrir saltbitunum.
Lambaspjótin með suðrænu ívafi þar sem chimichurri kemur með bragðið.
Lambaspjótin með suðrænu ívafi þar sem chimichurri kemur með bragðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert