Æðislegar hindberja pavlovur úr smiðju Lindu

Eldhúsgyðjan Linda Ben töfrar hér fram æðislegar hindberja pavlovur sem …
Eldhúsgyðjan Linda Ben töfrar hér fram æðislegar hindberja pavlovur sem erfitt er að standast. Ljósmynd/Samsett

Linda Ben ein af okkar eldhúsgyðjum, sem heldur úti uppskriftarsíðunni Linda Ben, kann svo sannarlega að útbúa sælkerakræsingar sem fanga auga og munn. Hér höfum við æðislegar litlar pavlovur sem koma úr smiðju Lindu og bragðast dásamlega, þær bráðna í munni og koma kökuástríðunni á flug. Marengsinn er seigur og svolítið blautur að innan sem er algjörlega ómótstæðilega ljúffengt og erfitt er að standast. Hindberin eru fersk og toppa bragðupplifunina. 

Hindberja pavlovur

  • 6 eggjahvítur
  • 3,5 dl sykur
  • 2 tsk. kornsterkja (maizenamjöl)
  • 1/8 tsk. cream of tartar
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 tsk. hvítt borðedik
  • 500 ml rjómi
  • St. Dalfour hindberjasulta
  • 250 g hindber
  • Fersk mynta til að skreyta

Aðferð:

1. Stillið ofninn á 120ºC, undir og yfir hita.

2. Notið fullkomlega hreina hrærivéla skál, setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og notið þeytarann.

3. Blandið kornsterkjunni út í sykurinn, hrærið saman.

4. Þeytið eggjahvíturnar mjög rólega fyrst, setjið 1 matskeið af sykri út í eggjahvíturnar í einu á ca ½ mín fresti, aukið hraðann hægt og rólega eftir því sem þið setjið meiri sykur út í (þolinmæðisverk en þó þess virði).

5. Blandið saman vanilludropum og hvíta borðedikinu, hellið blöndunni út í þegar eggjahvíturnar hafa náð stífum toppum og hrærið saman við í ½ mínútu lengur.

6. Setjið smjörpappír á ofnplötu, notið tvær matskeiðar til að útbúa u.þ.b. 10 cm kökur, hverr kaka er u.þ.b. 2 matskeiðar af deigi. Passið að hafa smá fjarlægð á milli  því marengsinn stækkar örlítið í ofninum.

7. Bakið í 40-50 mínútur, slökkvið svo á ofninum en ekki opna ofninn. Látið kökurnar kólna með ofninum. Takið þær út þegar ofninn hefur kólnað fullkomlega.

8. Þeytið rjómann, skiptið rjómanum á milli pavlóvanna, setjið 1 msk af hindberjasultu ofan á rjómann og svo hindber ofan á hana. Skreytið með myntu laufum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert