Himneskur morgunverðarstaður í Kaupmannahöfn

Ø12 kaffihúsið er tilvalinn morgunverðar- og brönsstaður. Boðið er upp …
Ø12 kaffihúsið er tilvalinn morgunverðar- og brönsstaður. Boðið er upp á fjölbreyttan og spennandi matseðil og kaffi í hæsta gæðaflokki. Samsett mynd

Ø12 kaffihúsið er tilvalinn morgunverðar- og brönsstaður. Kaffihúsið býður upp á fjölbreyttan og spennandi matseðil, góða þjónustu og kaffi í hæsta gæðaflokki. Frábær staður fyrir staðgóðan morgunverð eða bröns. Ø12 er þéttsetinn staður og getur verið skynsamlegt að bóka borð fyrir fram.

Metnaður Ø12 felst í að framreiða hágæða máltíð, með mikla áherslu á gæðakaffið frá hinu goðsagnakennda Ozone Coffee. Hvað matinn varðar leggur kaffihúsið sig fram við að gera hvern rétt að upplifun fyrir auga og munn. Kaffihúsið mun klárlega ekki valda vonbrigðum með gæði matarins og framsetningu og má með sanni segja að upplifunin sé himnesk.

Girnilegar pönnukökurnar þeirra.
Girnilegar pönnukökurnar þeirra. Skjáskot/Instagram
Egg Benedikt er einn vinsælasti morgunverðarrétturinn um þessar mundir.
Egg Benedikt er einn vinsælasti morgunverðarrétturinn um þessar mundir. Skjáskot/Instagram
Kaffiunnendur munu elska kaffið á þessu kaffihúsi.
Kaffiunnendur munu elska kaffið á þessu kaffihúsi. Skjáskot/Instagram
Ljúft að njóta í upphafi dags.
Ljúft að njóta í upphafi dags. Skjáskot/Instagram
Ekta staður til að njóta kræsinga í góðra vina hópi …
Ekta staður til að njóta kræsinga í góðra vina hópi eða með ástvinum. Skjáskot/Instagram
Freistingarnar eru alls staðar.
Freistingarnar eru alls staðar. Skjáskot/Instagram







mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert