Rómantísk kvöldverðarsigling á Signu

Rómantísk og unaðsleg stemning að fara í kvöldverðarsiglingu á Signu …
Rómantísk og unaðsleg stemning að fara í kvöldverðarsiglingu á Signu í borg ástarinnar og skála í kampavíni. Samsett mynd

Eitt af því sem hægt er að gera í Parísarborg, borg ástarinnar, er að upplifa rómantíska stemningu með því að fara í hádegisverðar- og/eða kvöldverðarsiglingu á ánni Signu þar sem rómantíkin svífur yfir vötnunum. Þessi upplifun er afslappandi leið til að skoða kennileiti Parísarborgar eins og Eiffelturninn og Louvre-safnið sem og önnur stórfræg og stórmerk kennileiti Parísarborgar. Þetta er ekki síður notaleg og slakandi leið til að hrífast af útsýninu, arkitektúrnum og fallegum byggingarstíl við árbakka Signu, sigla undir brýrnar eins og Pont Neuf þegar þú snæðir þriggja rétta sælkeramáltíð paraða með kampavíni.

Útsýnið stórfenglegt þegar siglt er upp og niður Signu í …
Útsýnið stórfenglegt þegar siglt er upp og niður Signu í Parísarborg. Skjáskot/Instagram

Rómantísk sigling á fljótabát

Þeir sem hyggjast ferðast til Parísar ættu að huga að því að tryggja sér eftirminnilegt kvöld með sælkerakvöldverðarsiglingu með fram ánni Signu með lifandi tónlist. Það eru nokkur fyrirtæki sem bjóða upp á þessa þjónustu og auðvelt er að leita sér upplýsinga á veraldarvefnum með verð og framboð en Bateaux Parisiens er eitt af mörgum þessara fyrirtækja. Þú finnur ástina í loftinu þegar fljótabáturinn siglir með ykkur á þægilegum hraða í tveggja klukkustunda langri rómantískri siglingu og drekkur í þig á sama tíma ljósaborgina þegar hún lifnar við á nóttunni og upplifir sannkallað Parísarkvöld í rómantísku og friðsælu umhverfi.

Eiffelturninn skartar sínu fegursta allan ársins hring við Signu.
Eiffelturninn skartar sínu fegursta allan ársins hring við Signu. Skjáskot/Instagram
Sælkeraréttirnir eru hver öðrum girnilegri sem töfraðir eru fram á …
Sælkeraréttirnir eru hver öðrum girnilegri sem töfraðir eru fram á meðan siglingunni stendur. Skjáskot/Instagram
Frakkarnir kunna að búa til fallegustu og bragðbestu eftirrétti í …
Frakkarnir kunna að búa til fallegustu og bragðbestu eftirrétti í heimi. Skjáskot/Instagram
Það er sannkölluð sælkeraveisla að fara í siglingu á Signu …
Það er sannkölluð sælkeraveisla að fara í siglingu á Signu þar sem boðið er upp á glæsilega matseðla. Skjáskot/Instagram
Rómantísk stemning ríkir um borð og útsýnið fangar augað.
Rómantísk stemning ríkir um borð og útsýnið fangar augað. Skjáskot/Instagram
Ljúft á njóta um borð.
Ljúft á njóta um borð. Skjáskot/Instagram





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert