Verslun Krónunnar á Granda verður opnuð á ný klukkan 15 í dag eftir gagngerar endurbætur sem hafa staðið yfir í um mánuð. Við hönnun og útfærslu á nýrri og endurbættri verslun var horft til þess að mæta enn betur væntingum viðskiptavina og þörfum nútímans, ásamt því að horfa til umhverfisvænna lausna og innleiðingu á vistvænu kælikerfi.
„Krónan á Granda opnaði fyrir 16 árum síðan og er ein af okkar stærstu verslunum. Við erum svo heppin að eiga frábæran kjarnahóp af viðskiptavinum á Grandanum sem mörg hver hafa fylgt okkur alveg frá upphafi. Með þessum viðamiklu breytingum lögðum við sérstaka áherslu á að gefa ferskleikanum enn meira rými með stórri og glæsilegri ávaxta- og grænmetisdeild. Sem endranær vildum við tryggja gott aðgengi og jákvæða upplifun viðskiptavina með breiðum göngum, þægilegri lýsingu og góðu flæði í gegnum verslunina. Einnig höfum við svarað ákalli viðskiptavina um meira úrval af tilbúnum réttum en nú geta þeir meðal annars nælt sér í rétti frá Tokyo Sushi, WokOn og Rotissiere. Tveir staðir munu síðan bætast við flóruna síðar á þessu ári sem verður spennandi að segja frá þegar nær dregur,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
„Við erum gríðarlega ánægð með endurbæturnar á versluninni og hlökkum til að hitta viðskiptavini okkar á ný. Við vonum að Krónuvinir taki vel í nýtt og ferskara útlit þar sem markmiðið er ávallt að auðvelda þeim lífið og að það sé gott að versla í Krónunni,“ segir Alexander Kolesnyk, verslunarstjóri Krónunnar á Granda.
Einnig er fjórðu afgreiðslulausn Krónunnar gefið aukið rými á Grandanum en þar er nú að finna afhendingarstöð Snjallverslunar þar sem viðskiptavinir geta verslað vörur á heimasíðu eða í appi Krónunnar og sótt pöntunina í verslun. Þá eru umhverfisvænar lausnir í fyrirrúmi með innleiðingu á nýjum tækjabúnaði innan verslunar en Krónan vinnur meðal annars gagngert að því að uppfæra öll kælikerfi verslana sinna úr freoni í CO2.
Í tilefni opnunarinnar mun Krónan vera með tilboð á völdum vörum dagana 21. til 24. september í verslun Krónunnar á Granda. Auk þess munu viðskiptavinir sem notast við Skannað og skundað í appi Krónunnar, fá 5% afslátt af öllum vörum alla opnunarhelgina.