Döðlugott er eitt af því sem rennur ávallt ljúft í veislugesti og er ákaflega góður sætur biti. Það eru til margar tegundir af döðlugotti og Berglind Hreiðars lífsstíls- og matarbloggara hjá Gotterí og gersemar finnst verðugt að hafa tegundirnar sem flestar. Þetta er nýjasta uppskriftin að döðlugotti úr hennar smiðju sem upplagt er fyrir aðdáendur döðlugotts að prófa.
„Þetta eru molar sem allir elska, það er líka bara þannig. Í þessum er smá berjakeimur í bland við karamellu og lakkrís, síðan eitthvað annað gott,“ segir Berglind. Nú er bara að prófa og taka smakk.
Döðlugott með Pandakúlum
50-60 bitar
- 220 g smjör
- 450 g saxaðar döðlur
- 120 g púðursykur
- 120 g Pandakúlur með saltkaramellubragði
- 120 g Pandakúlur með jarðarberjabragði
- 100 g Kellogg‘s Rice Krispies
- 300 g Síríus súkkulaðidropar (dökkir)
- 80 g Síríus súkkulaðidropar (hvítir)
Aðferð:
- Setjið bökunarpappír í kökumót/fat sem er um 20 x 30 cm að stærð.
- Bræðið smjörið í stórum potti við meðalháan hita.
- Þegar það er bráðið má bæta döðlum og púðursykri saman við og leyfa að malla við meðalhita í um 15 mínútur eða þar til döðlurnar hafa bráðnað og blandan minnir á þykka karamellu. Hrærið mjög reglulega í allan tímann.
- Saxið á meðan Pandakúlur (báðar tegundir) niður og bætið þeim ásamt Rice Krispies í pottinn og blandið vel.
- Setjið blönduna í formið og þjappið og jafnið vel, geymið í frysti á meðan þið bræðið súkkulaðið.
- Bræðið dökka dropa í einni skál og hvíta í annarri, smyrjið fyrst dökka súkkulaðinu jafnt yfir döðlublönduna og skvettið síðan því hvíta óreglulega yfir allt saman og setjið í frysti aftur í um 20 mínútur.
- Takið síðan út, lyftið blöndunni upp úr forminu á bökunarpappírnum og skerið niður í munnstóra bita.
- Geymið í kæli eða frysti þar til bitanna skal njóta.