Þessi dásemdar marensterta er með sumarlegu ívafi og passar vel til að bjóða upp á í sumarfríinu eða mæta með í næsta sumarboð. Þetta er marensterta með rjóma, ferskum berjum, Daim súkkulaði og fílakaramellusósu sem tikkar í öll boxin og er jafn klassísk og íslenska sumarkonan. Helena Gunnarsdóttir hjá Eldhúsperlum á heiðurinn af uppskriftinni en hún gerði hana fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.
Ein allra vinsælasta tertan á veisluborðum er einmitt marens, það er líka alveg ótrúlega einfalt að gera marenstertu og á flestra færi. Best er að gera botnana daginn áður en bera á tertuna fram. Auk þess er gott að setja á tertuna 6-8 klukkustundum áður en það á að bera dýrðina fram.
Langar þig í þessa marensbombu í næsta sumarboði?
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
Marensterta með sumarívafi
Marensbotnar
- 5 eggjahvítur
- 150 g sykur
- 150 g púðursykur
- ¼ tsk. vínsteinslyftiduft
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 120°C með blæstri og leggið bökunarpappír á tvær bökunarplötur.
- Þeytið saman eggjahvítur, sykur, púðursykur og vínsteinslyftiduft þar til sykurinn leysist upp og úr verður þykkur marens. Mælt er með að þeyta marensinn á mesta hraða í hrærivél í 5-7 mínútur.
- Skiptið marensinum jafnt á plöturnar tvær og mótið tvo fallega botna u.þ.b. 20 cm í þvermál.
- Bakið í 70 mínútur. Slökkvið þá á ofninum og opnið smá rifu á hurðina.
- Leyfið að kólna alveg í ofninum, helst yfir nótt.
Fylling
- 7 dl rjómi
- Daim kurl eða annað súkkulaði
- Bláber og jarðarber (sett á milli botnana)
Aðferð:
- Bræðið fílakaramellur í rjómanum við vægan hita í potti.
- Setjið til hliðar og kælið.
- Geymið berin þar til tertan er sett saman.
Ofan á
- ½ dl rjómi
- 125 g fílakaramellur (hálfur poki)
- Bláber og jarðarber
Aðferð og samsetning tertunnar:
- Þeytið rjómann.
- Setjið helminginn af rjómanum á annan botninn, dreifið hökkuðum Daim, jarðarberjum og bláberjum yfir ásamt smá fílakaramellusósu.
- Leggið hinn botninn ofan á.
- Setjið á rjóma og skreytið fallega með berjum.
- Dreifið að lokum karamellusósunni yfir.
- Gott að er að setja marenstertuna saman 6-8 klukkustundum áður en hún er borin fram.