Matthildur Ósk Guðbjörnsdóttir silfurhafi býður upp á helgarbaksturinn að þessu sinni en hún deilir með lesendum uppskriftinni af sínum uppáhaldsbrúnkum sem hún þróaði sjálf. Hún er nýútskrifuð sem bakari og fékk silfurverðlaun á dögunum þegar hún tók þátt í Norðurlandameistaramótinu í bakstri, Nordic Cup.
Matthildur er rúmlega tvítug og alin upp í Mosfellsbæ. Hún hefur haft áhuga á eldamennsku frá því hún man eftir sér. „Uppáhalds fagið mitt í grunnskóla var heimilisfræði. Foreldrar mínir eru einnig eðalsælkera heimiliskokkar og höfðu án efa áhrif á ástríðu mína fyrir matargerð og bakstri,“ segir Matthildur með bros á vör.
„Eftir grunnskóla fór ég í grunndeild matvæla í Menntaskólanum í Kópavogi, til að prufa og ákveða hvort ég vildi læra kokkinn eða bakarann. Þegar ég ákvað að læra bakarann skall heimsfaraldur á og lokaði öllu þannig að ég fór bara í fjarnám á meðan samkomutakmarkanir voru í gangi,“ segir Matthildur sposk á svip og bætir við að örlögin hafi síðan haft áhrif á að hún fór á nemasamning í bakaríi þar sem hún heillaðist af iðngreininni.
„Frænka mín sendi mér síðan skilaboð gegnum Instastory á Instagramsíðu sinni, þar sem uppáhaldsbakaríið hennar var að leita af nemum. Ég hafði aldrei heyrt um þetta bakarí en var strax alveg heilluð af Instagramsíðu bakarísins og sótti um. Viku seinna var ég byrjuð á samningi hjá Gulla Arnari Bakarí. Samningsárin voru viðburðarík og fékk ég að læra, vaxa og dafna i þessu frábæra bakaríi með skemmtilegu fólki,“ segir Matthildur.
„Ég útskrifaðist síðan í vor og fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í Hráefnisfræði bakara og stóðst sveinsprófið í lok maí. Nú er ég yfirbakari brauðdeildar hjá Gulla Arnari og keppti með íslenska Bakaralandsliðinu í The Nordic Bakary Cup í ágúst síðastliðnum.“
Landsliðið gerði sér lítið fyrir og hreppti silfurverðlaunin í keppninni. Það má því með sanni segja að Matthildur hafi fundið sína hillu í bakstrinum þar sem hún nýtur sín vel og blómstrar í leik og starfi.
„Uppskriftin sem ég ætla deila með ykkur er af mínum uppáhaldsbrownies eða brúnkum eins og þær heita á góðri íslensku en hún er sú fyrsta sem ég lærði utanbókar og þróaði sjálf. Hægt er að bæta eða skipta út súkkulaðinu fyrir oreokex, karamellu eða einhverju öðru gúmmulaði og svo mæli ég með að bera kökuna fram með ís.“
Brúnkurnar hennar Matthildar
Aðferð: