Er hægt að halda lífi í kryddjurtum keyptum úti í búð?

Basilíka og rósmarín eru afar viðkvæmar jurtir en hægt er …
Basilíka og rósmarín eru afar viðkvæmar jurtir en hægt er að halda þeim á lífi við rétt skilyrði. Samsett mynd

Að sögn Steinunnar Reynisdóttur, fagstjóra í garðyrkjudeild Garðheima, á að vera hægt að viðhalda þeim kryddjurtum sem keyptar eru í t.d. matvöruverslunum, kannski ekki allan veturinn en það sé alltaf hægt að kaupa blómaperu svo jurtin dafni við rétt birtuskilyrði. Það þurfi að halda þeim svolítið rökum, ekki rennandi blautum, vökva þær 2-3 sinnum í viku en það fer eftir birtustigi úti og hve heitt er inni á heimilinu.

Steinselja er vinsæl í matargerð hérlendis.
Steinselja er vinsæl í matargerð hérlendis. Adrian "Rosco" Stef/Unsplash

„Vinsælustu kryddjurtirnar eru þær sem fólk er að nota mikið eins og steinselja, basilíka, timían og rósmarín. Aðalmálið er að umpotta þær kryddjurtir sem keyptar eru úti í búð í stærri pott og hafa þær í þokkalega góðri birtu,“ segir Steinunn. „En basil er mikil kuldaskræfa og það má ekki hafa hana þar sem er t.d. opinn gluggi.“

Steinunn segir jafnframt að rósmarín geti verið erfið. Hún á ekki auðvelt með að spíra fræi. „Margir eiga eflaust rósmarínplöntu frá því í vor en þá er um að gera að koma henni inn og halda henni rakri.“

Hún bendir á að alltaf sé hægt að kaupa vatnsræktunarkerfi fyrir þrjár plöntur og sá fræjum, nokkuð oft, svo fáist reglulega nýjar ferskar plöntur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert