Þessi krispí túnfiskskál á eftir að koma á óvart. Það tekur enga stund að útbúa réttinn og hann er mjög bragðgóður. Það er tilvalið að fá sér þessa í hádeginu eða sem léttan kvöldverð. Í réttinum eru stökk hrísgrjón, túnfiskur, japanskt majónes, sriracha-dressing, gúrka og avókadó sem er ljúffeng blanda. Heiðurinn að uppskriftinni á Hildur Rut Ingimarsdóttir en hún gerði réttinn fyrir uppskriftavefinn Gerum daginn girnilegan.
Krispí túnfiskskál
- 3 dl elduð hrísgrjón
- 2 msk. sojasósa (1-2 msk. eftir smekk)
- 1 msk. sesamolía
- 1 msk. Tabasco Sriracha-sósa eða magn eftir smekk
- 1 stk. túnfiskur í dós (100-180 g)
- 2 msk. japanskt majónes (2-3 msk. eftir smekk)
- Pipar eftir smekk
- Gúrka eftir smekk
- Kóríander eftir smekk
- ½ stk. avókadó
- Everything bagel-krydd, sesamgaldur eða annað sambærilegt krydd
Aðferð:
- Byrjið á því að blanda saman hrísgrjónum, sojasósu, sesamolíu og Sriracha-sósu.
- Dreifið hrísgrjónunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 25-30 mínútur við 190°C hita eða þar til hrísgrjónin eru orðin stökk og gyllt.
- Opnið túnfiskdósina og tæmið vökvann.
- Blandið túnfisknum saman við japanskt majónes, Tabasco Sriracha-sósu og kryddið með pipar eftir smekk.
- Skerið gúrkuna og avókadóið í bita.
- Setjið hrísgrjónin í botn á skál, leggið túnfiskblönduna ofan á þau og bætið síðan við gúrku, avókadó, kóríander og kryddið með Everything bagel-kryddi.
- Berið fram og njótið.