Á þessum árstíma er oft kalt og dimmt úti og þá er nærandi að fá sér hollan og góðan heitan drykk sem yljar kroppnum. Grænt te er til að mynda stútfullt af andoxunarefnum sem hafa afar góð áhrif á líkamann. Hér er uppskrift að ljúffengu grænu tei með sítrónu, fersku engifer og hunangi sem gott er að ylja sér við á köldum vetrardegi. Það er líka góð vörn við kvefi og öðrum leiðindakvillum.
Grænt te með sítrónu, engifer og hunangi
Fyrir 1
- 1 tsk. grænt te eða 1 tepoka
- 2 dl soðið vatn
- 1-2 bátar/sneiðar ferskt sítróna
- 1-2 sneiðar fersk engiferrót, raspaðar eða kramdar
- 1 msk. lífrænt hunang að eigin vali
Aðferð:
- Byrjið á því að sjóða vatn.
- Skerið engiferrót, eina til tvær sneiðar og merjið eða raspið.
- Skerið sítrónu í báta eða þykkar sneiðar.
- Hellið vatninu í stórt glas með handfangi eða góðan bolla.
- Bætið ferska engiferinu og sítrónubátunum út í.
- Látið standa í 3-5 mínútur.
- Fjarlægið tepokann ef þið notuðu hann, sítrónu og engiferrótina.
- Bætið síðan hunangi út í.
- Berið fram og drekkið í huggulegheitum.