Hekla Guðrún Þrastardóttir er einstaklega hæfileikaríkur bakari og hefur unnið nokkur afrek í iðngreininni þrátt fyrir ungan aldur en hún er 21 árs gömul. Eftir að hún kláraði námið síðastliðið vor skellti hún sér til Vínarborgar að vinna í fáguðu frönsku bakaríi, Parémi, en hún fékk Eramus+ styrk frá Iðunni í það verkefni.
Hekla er fædd og uppalin á Skagaströnd og hefur haft ástríðu fyrir bakstri frá því hún man eftir sér. Hæfileikar hennar komu strax í ljós í náminu en hún vann nemakeppni Kornax árið 2023. Síðan keppti hún fyrir hönd Íslands í heimsmeistarakeppni ungra bakara sem var haldin hér á landi, ásamt Stefaníu Malen árið 2024 þar sem þær fengu viðurkenningu fyrir afraksturinn sinn.
Hekla útskrifaðist sem bakarasveinn og iðnstúdent í fyrra, árið 2024, og fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í fagfræði bakaraiðnar.
„Eftir að ég útskrifaðist sem iðnstúdent og bakarasveinn frá Menntaskólanum í Kópavogi fékk ég Erasmus+ styrk frá Iðunni og það er ástæðan fyrir því að ég fór til Austurríkis, til Vínarborgar. Ég var þar í fjóra mánuði að vinna í fallegu frönsku bakaríi,“ segir Hekla og bætir við að hún hafi ekki valið Vín af ástæðulausu.
„Ég valdi Vín því mig hefur alltaf langað að fara þangað og ég hafði heyrt góða hluti um borgina. Ég var búin að heyra að það væri einstaklega fallegt þar og gott að búa í borginni enda hefur hún verið valin ein fjölskylduvænasta borgin í heimi. Ég hafði líka séð svo fallegar myndir af bakaríum í borginni sem heilluðu mig. Eftir að hafa dvalið í Vín í fjóra mánuði get ég vel tekið undir það sem ég hef heyrt um borgina sem og séð á myndum. Þetta er alveg yndisleg borg, allt svo fallegt og umhverfið þægilegt,“ segir Hekla og brosir.
„Bakaríið sem ég var að vinna hjá er í frönskum stíl og er virkilega flott, mjög vandað og allt gert frá grunni. Það er líka allt svo hreint og vel þrifið á hverjum einasta degi. Mér líkaði strax við staðinn þegar ég kom og umhverfið. Fólkið sem vinnur þarna tók afar vel á móti mér og vinnuandinn er mjög góður,“ segir Hekla og segist vera þakklát fyrir hversu góðar móttökurnar voru.
„Bakaríinu er skipt í nokkra flokka, í kökur, croissant, brauð og bakstur, og eldhús. Síðan eru rekstraraðilarnir með aðra litla búð við hliðina á þar sem seldur er ís í brauðformi á sumrin. Allt þar er gert á staðnum og þar fer fram mikil súkkulaðivinnsla á veturna.“
Er vinnan í bakaríinu úti frábrugðin því sem þú ert vön hér á landi?
„Mér finnst bakaríin mjög góð sem ég hef unnið hjá hér á Íslandi, bæði Sandholt og Hygge Coffee & Micro Bakery. Þau eru með mjög svipaðan og vandaðan stíl. Þetta var samt öðruvísi, mikið nýtt sem ég var að prófa og ég lærði margt tengt frönsku bakkelsi og aðeins um austurrískt en þá var yfirleitt búið að setja smá franskan stíl á það.“
Hvernig var að vinna í bakaríinu hvað varðar metnað og aga?
„Það var minna álag lagt á hvern og einn og stöðurnar betur mannaðar. Verklagið hvað það varðar býr sjálfkrafa til meiri metnað í starfinu og allir voru mjög ánægðir í starfi. Það var ekki eins mikið kapphlaup við tímann eins og hér heima.“
Hvernig finnst þér bakkelsið og brauðið vera úti miðað við það íslenska?
„Mér fannst mest af bakkelsinu og brauðinu mjög gott, bakaríin úti eru nú samt ekki með góðu íslensku snúðana og kleinurnar. Bakaríin úti eru mismunandi eins og hér á Íslandi og hver með sína sérstöðu.“
Hvað stendur upp úr eftir þessa reynslu?
„Fyrst og fremst hvað það er gott að breyta til og prufa eitthvað nýtt, stundum verður maður bara að taka á skarið og hoppa út í djúpu laugina,“ segir Hekla og er staðráðin í að halda áfram að sækja sér meiri reynslu á erlendri grundu.
„Ég er á leiðinni aftur út í byrjun janúar þar sem þau í bakaríinu buðu mér vinnu. Þá mun ég flytja ótímabundið út til Vínarborgar og halda áfram að vinna hjá Parémi,“ segir Hekla spennt.
Hekla segir að það skipti sköpun að manni líði vel í vinnunni. „Það skiptir líka máli að vinna við það sem þú elskar, þá skiptir ekki máli hvar þú ert. Ég er mjög heppin með fjölskyldu sem styður við bakið á mér í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur. Fjölskyldan mín hefur verið dugleg að heimsækja mig þessa mánuði sem ég var úti og er ég endalaust þakklát fyrir það.“
Áttu þér draum um að eiga þitt eigið bakarí?
„Ég hef oft pælt í því hvernig það væri að eiga sitt eigið bakarí. Kannski einn daginn en maður veit aldrei. Mig dreymir um að geta bara haldið áfram að gera það sem ég elska, að baka,“ segir Hekla ástríðufull og bætir við að allir eigi að elta drauminn sinn.
„Ég hvet alla sem eru að spá í og langar til að breyta til og skipta umhverfi, að slá til. Þessi reynsla og þekking sem ég hef öðlast á þessu ferðalagi hefur víkkað sjóndeildarhringinn hjá mér. Maður er ekki lengra að heiman en einu flugfari,“ segir Hekla að lokum og horfir björtum augum til framtíðarinnar.