Andrés er nýkrýndur Grænmetiskokkur ársins 2025

Andrés Björgvinsson frá Lúx-veitingum sigraði keppnina Grænmetiskokkur ársins 2025.
Andrés Björgvinsson frá Lúx-veitingum sigraði keppnina Grænmetiskokkur ársins 2025. Ljósmynd/Mummi Lú

Grænmetiskokkur ársins 2025 fór fram í fyrradag í verslun IKEA. Keppnin var haldin í sérútbúnum keppniseldhúsum við útgang verslunarinnar. Verðlaunaafhending fór fram í Bjórgarðinum í kvöld, þar sem úrslitin voru kunngjörð.

Andrés Björgvinsson frá Lúx-veitingum sigraði keppnina með glæsibrag. Andrés mun keppa fyrir Íslands hönd á norræna meistaramótinu Nordic Green Chef, sem haldið verður í Herning í Danmörku í mars á næsta ári.

Í öðru sæti var Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og í þriðja sæti var Kamil Ostrowski frá veitingastaðnum Brak.

Kamil Ostrowski frá veitingastaðnum Brak var í þriðja sæti, Monica …
Kamil Ostrowski frá veitingastaðnum Brak var í þriðja sæti, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi í öðru sæti og Andrés sigraði keppnina. Ljósmynd/Mummi Lú

Alls tóku fjórir keppendur þátt að þessu sinni, Andrés, Dominika Kulińska, Kamil og Monica og öll stóðu þau sig framúrskarandi vel og töfruðu fram girnilegum grænmetisrétti.

Andrés undirbýr sig með aðstoðarmanni sínum.
Andrés undirbýr sig með aðstoðarmanni sínum. Ljósmynd/Mummi Lú
Kamil einbeittur á svip.
Kamil einbeittur á svip. Ljósmynd/Mummi Lú
Monica nýtir sér hrærivélina.
Monica nýtir sér hrærivélina. Ljósmynd/Mummi Lú


Skylduhráefni keppenda fyrir þriggja rétta matseðil var eftirfarandi:

Forréttur:

  • Tómatur, fennel og blaðsellerí

Aðalréttur:

  • Arborio hrísgrjón, hvítur spergill og grasker

Eftirréttur:

  • Basilíka, jarðarber og rjómaostur

Haldin í annað sinn

Var þetta í annað sinn sem keppnin Grænmetiskokkur ársins var haldin á vegum Klúbbs matreiðslumeistara. Fyrsta keppnin fór fram í fyrra, árið 2024, en þá sigraði Bjarki Snær Þorsteinsson og keppti síðan fyrir Íslands hönd á Global Vegan Chef Europe í Rimini á Ítalíu fyrr á þessu ári. Þar hafnaði hann í þriðja sæti í keppnishópnum Europe North.

Matarvefur mbl.is óskar þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.

Dominika Kulińska komin með eftirréttinn.
Dominika Kulińska komin með eftirréttinn. Ljósmynd/Mummi Lú
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert