Mikið verður um dýrðir á Eyju vínstofu & bistro á Akureyri í kvöld, föstudaginn 4. apríl og á morgun, laugardaginn 5. apríl, en þá verður haldið glæsilegt Pop Up með engum öðrum en Andreasi Patreki Williams Gunnarssyni, matreiðslumanni á Monkeys. Hann mun töfra fram fimm rétta matseðil fyrir gesti Eyju, þar sem ástríða hans fyrir íslenskri matargerð fær að njóta sín.
Andreas hóf feril sinn sem nemi á Dill og hefur síðan þá unnið bæði í Danmörku og á veitingastöðum í Reykjavík. Hann hefur haldið POP-UP viðburði í Noregi og á Íslandi, og nú fær Akureyri tækifæri til að upplifa matargerð hans í fyrsta flokks umhverfi í eyju.
„Við erum mjög spennt að fá Andreas til okkar norður og undirbúningur er kominn á fullt hjá okkur,“ segir Guðbjörg. „Það er mikill heiður fyrir okkur að fá tækifæri til að hýsa POP-UP sem þetta. Andreas er mjög hæfileikaríkur, hann er með brennandi áhuga og ástríðu fyrir matargerð sem mun skila sér á diskana,“ segir Guðbjörg Einarsdóttir,vert og einn af eigendum Eyju vínstofu & bistro.
Alexander Alvin,„executive chef“, á Eyju og á Hótel Vesturlandi og Helgi Pétur Davíðsson, yfirþjónn á Eyju, munu ásamt Andreasi og fleiri snillingum sjá til þess að gestir fái einstaka upplifun. „Við munum taka vel á móti Andreasi og hans teymi, við hlökkum til að bjóða gestum upp á frábæra kvöldstund með ljúffengum mat og góðu andrúmslofti,“ segir Guðbjörg enn fremur.
Eyja vínstofa & bistro er staðsett í hjarta Akureyrar og getur tekið u.þ.b. 55 gesti í sæti í einu. Staðurinn breytist svo í vínbar eftir matarkeyrsluna um helgar.
„Við tökum bara inn vín á Eyju sem okkur finnst góð. Við reynum líka að hafa mjög fjölbreytt úrval af vínum í boði, alveg frá náttúruvínum yfir í mjög klassísk vín, það ættu allir að finna sér vín við sitt hæfi.“
Andreas leggur mikið upp úr íslenskri matarmenningu og uppáhaldshráefni hans eru þau sem hann finnur í íslenskri náttúru. Andreas er spenntur að koma og deila sinni matargerð með okkur hér fyrir norðan,“ segir Guðbjörg.
Teymið í Eyju hyggst halda áfram að skipuleggja fleiri Pop Up-viðburði í framtíðinni. „Við finnum fyrir miklum áhuga frá Akureyringum og viljum halda áfram að bjóða upp á spennandi viðburði í heimabyggð. Fyrst og fremst viljum við að bæjarbúar geti verið stoltir af Eyju og því sem við höfum upp á að bjóða,“ bætir hún við.
Verðið á fimm rétta Pop Up-matseðlinum er 10.900 krónur og þá er nánast fullbókað.