Lauflétt sætkartöflumús sem steinliggur með öllu

Þessa sæta kartöflumús er auðvelt að gera auk þess sem …
Þessa sæta kartöflumús er auðvelt að gera auk þess sem hún er svakalega góð. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Þessi lauflétta sætkartöflumús á án efa eftir að falla í kramið jafnt hjá ungum sem öldnum. Heiðurinn af uppskriftinni á matgæðingur og keramiker sem heldur úti sínu eigin matarbloggi.

Eins og Hanna segir þá orkar kannski tvímælis að kalla hana lauflétta þar sem hún er stútfull af hitaeiningum en það skiptir kannski ekki öllu fyrir yngstu og elstu kynslóðina. Hún er mjög auðveld að búa til og dásamlega góð á bragðið. Sjálf er ég búin að prófa hana og þvílík dásemd að njóta.

Lauflétt sætkartöflumús

  • 800 g af sætri kartöflu
  • 90 – 100 g smjör
  • 2 – 3 dl rjómi
  • Saltflögur eftir smekk
  • Nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á að sjóða kartöflurnar og flysja.
  2. Suðutíminn getur verið mismunandi eftir stærð og lögun, en hann tekur yfirleitt 20 – 40 mínútur.
  3. Hægt er að stytta hann með því að skera kartöfluna í minni bita.
  4. Maukið síðan kartöflurnar með töfrasprota.
  5. Bræðið smjör í potti.
  6. Setjið maukuðu kartöflurnar út í ásamt rjóma og blandið vel saman.
  7. Saltið og piprið eftir smekk.
  8. Berið fram með því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert