Ómótstæðilega gott sítrónuspagettí með humri og burrata

Spagettí með humri og burrata sem getur ekki klikkað. Undursamlegt …
Spagettí með humri og burrata sem getur ekki klikkað. Undursamlegt að njóta. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar hefur mikið dálæti af burrataostinum og reyndar öll fjölskyldan. Hún töfraði fram þennan dásamlega spagettírétt á dögunum fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn þar sem burrataosturinn er í forgrunni og leikur við bragðlaukana ásamt humri. Sítrónusmjörið bráðnar í munni og minnir á vorið.

Fullkominn réttur til að njóta í páskafríinu með fjölskyldunni.

Sítrónuspagettí með humri og burrata

Fyrir 4

  • 300 g litlir tómatar
  • 400 g spagettí eða linguine pasta
  • 500 g skelflettur humar
  • 1 stk. sítróna (skorin í þunnar sneiðar)
  • 4 stk. hvítlauksgeirar
  • smjör til steikingar
  • ólífuolía eftir smekk
  • salt og pipar eftir smekk

Toppur

  • ferskt basilpestó (grænt pestó), eftir smekk
  • ristaðar furuhnetur, eftir smekk
  • söxuð basilíka, eftir smekk
  • 4 stk. litlar burrata kúlur (við stofuhita)

Meðlæti

  • Hvítlauksbrauð eða annað brauð sem heillar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Setjið tómatana í eldfast mót, hellið um 2 msk. af ólífuolíu yfir, rífið 2 hvítlauksrif saman við, saltið og piprið.
  3. Bakið í ofninum í 20 mínútur á meðan þið undirbúið annað.
  4. Sjóðið spagettíið í söltu vatni.
  5. Smjörsteikið humarinn á meðan og rífið 2 hvítlauksrif yfir hann í lokin, saltið og piprið.
  6. Takið humarinn af pönnunni, bætið á hana smjöri (um 2 msk.), ólífuolíu (um 2 msk.) og sítrónusneiðum, leyfið að malla við meðalhita þar til sneiðarnar mýkjast upp.
  7. Bætið spagettínu saman við sítrónusmjörið og veltið upp úr því, fjarlægið svo sítrónusneiðarnar sjálfar.
  8. Raðið síðan saman á disk; spagettí, bökuðum tómötum, smjörsteiktum humri, pestó, furuhnetum, basilíku og síðast en ekki síst lítilli burrata kúlu.
  9. Njótið sem fyrst með góðu hvítlauksbrauði eða öðru brauði sem heillar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert