„Það er nákvæmlega þetta sem við brennum fyrir“

Teymið hjá Múlakaffi, Guðjón Harðarson, Jóhannes Stefánsson og Eyþór Rúnarsson …
Teymið hjá Múlakaffi, Guðjón Harðarson, Jóhannes Stefánsson og Eyþór Rúnarsson eru hoknir reynslu þegar kemur að því að halda stórveislu. mbl.is/Eyþór

Ein af stærstu veislum sem haldnar hafa verið hérlendis fór fram í Fífunni í marsmánuði þegar stórfyrirtækið Festi hélt í fyrsta skipti sameiginlega árshátíð, en undir hatti Festi eru m.a. Krónan, Elko, N1 og Lyfja. Það var því mikið um dýrðir þegar um 1700 veislugestir komu saman og gerðu sér glaðan dag. Þetta var svo sannarlega stórveisla á heimsmælikvarða.

Sköpuðu umgjörðina og upplifunina

Hið rótgróna fjölskyldufyrirtæki Múlakaffi hefur um áratugaskeið verið leiðandi í veisluþjónustu þar sem viðburðir af öllum stærðum og gerðum taka á sig ævintýralegan blæ. Það kom í hlut Múlakaffis, í samstarfi við Senu og árshátíðarnefnd Festi, að skapa umgjörðina og upplifunina í þessari risavöxnu veislu og síðast en ekki síst - að framreiða þriggja rétta glæsikvöldverð á mettíma.

Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, þekktur sem þorrakóngurinn, er búinn að …
Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, þekktur sem þorrakóngurinn, er búinn að standa fyrir ófáum stórveislum og löngu orðinn landsmönnum velkunnugur fyrir fagmennskuna sína þegar veislu skal gjöra. mbl.is/Eyþór

„Það er nákvæmlega þetta sem við í Múlakaffi brennum fyrir, að sjá svona stórkostlega veislu verða að veruleika og fylgjast með gleðinni í augum veislugesta þegar allt gengur smurt fyrir sig,“ segir Guðríður María Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Múlakaffis.

Stórveisla verður að veruleika

Það er skemmst frá því að segja að það krefst mikils undirbúnings að halda árshátíð af þessari stærðargráðu og eru þeir Eyþór Rúnarsson, yfirkokkur Múlakaffis, og Guðjón Harðarson, yfirmatreiðslumaður, hoknir af reynslu þegar kemur að stórveislum.

Guðríður María Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri Múlakaffis.
Guðríður María Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri Múlakaffis. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta snýst fyrst og fremst um faglegan undirbúning og náið samstarf við fyrirtækið sem í hlut á, og viðburðafyrirtækin, í þessu tilfelli við Senu,“ segir Guðjón.

Guðjón Harðarson er yfirmatreiðslumaður hjá Múlakaffi.
Guðjón Harðarson er yfirmatreiðslumaður hjá Múlakaffi. mbl.is/Eyþór

„Þarna koma saman um 150 starfsmenn þar sem hver og einn hefur sitt hlutverk á hreinu og allir vinna saman sem ein heild. Það er að mínu viti ákveðin listgrein að elda nautalund fyrir 1700 manns þar sem allir fá hina fullkomnu steikingu, og á mettíma,“ bætir Eyþór við.

Eyþór Rúnarsson er yfirkokkur Múlakaffis.
Eyþór Rúnarsson er yfirkokkur Múlakaffis. mbl.is/Eyþór

Árshátíð Festi í tölum

Myndirnar hér fyrir neðan eru frá þessu glæsilega kvöldi og tala sínu máli en tölfræðin er líka afar áhugaverð:

  • 1700 veislugestir í Fífunni í Kópavogi
  • 10 risaofnar og kílómetri af rafmagnsköplum
  • 350 kg af nautalundum
  • Heildarþyngd hráefnis um 1000 kg
  • 150 starfsmenn koma að verkefninu

Fermingar og útskriftir taka völdin

Nú þegar sól tekur að hækka á loftið þá tekur við tímabil ferminga og útskrifta sem eru mikilvæg tímamót í lífi landsmanna.

„Það eru ekki allar veislur sem við teljum í þúsundum gesta og í raun eru minni veislurnar mjög fyrirferðarmiklar hjá okkur í Múlakaffi. Við leggjum mikla áherslu á fermingar og útskriftir og snillingarnir okkar í veisluþjónustunni hafa sett saman virkilega spennandi matseðla sem við hlökkum til að framreiða. Þar er okkar aðaláhersla að við sjáum um veisluna frá A-Ö þannig að okkar viðskiptavinir geti einbeitt sér að því að njóta dagsins áhyggjulausir,“ segir Guðríður.

 

Salurinn var stórfenglegur að sjá.
Salurinn var stórfenglegur að sjá. Ljósmynd/Aðsend
Framúrskarandi framsetning.
Framúrskarandi framsetning. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Innkoman glæsileg.
Innkoman glæsileg. Ljósmynd/Aðsend
Gullfallegt á veisluborðinu. Smáréttir sem borðfélagar deila saman.
Gullfallegt á veisluborðinu. Smáréttir sem borðfélagar deila saman. Ljósmynd/Aðsend
Allt að gerast bak við tjöldin í eldhúsinu.
Allt að gerast bak við tjöldin í eldhúsinu. Ljósmynd/Aðsend
Girnilegir smáréttir.
Girnilegir smáréttir. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert