Helga Magga heilsumarkþjálfi og samfélagsmiðlari er iðin við að elda fyrir fylgjendur sína á Instagram og TikTok og gerði þennan fiskrétt á dögunum. Þessi fiskréttur er dásamlega góður og á vel við alla daga vikunnar. Í réttinum er þorskur bakaður í kókos-chili-sósu og það er chili-olían sem setur punktinn yfir i-ið í orðsins fyllstu merkingu.
Þorskur lagaður í kókós- og chili-sósu.
Ljósmynd/Helga Magga
Helga Magga tók fræin úr chilinu en það er mun sterkara að hafa fræin með. Helga var með eina venjulega kókosmjólk og aðra létta kókosmjólk. Með réttinum bar hún fram tilbúið sætkartöflusalat og brokkólísalat en hver og einn getur valið meðlæti sem passar hans smekk.
Hér fyrir neðan má sjá Helgu Möggu leika listir sínar í eldhúsinu.
Þorskur í kókos- og chili-sósu
- 800 - 1000 g þorskbitar
- 2 dósir kókosmjólk
- 1 msk. ólífuolía
- 1 laukur
- 2-3 hvítlauksrif
- 15 g ferskt engifer
- 1 ferskt chili
- 1 tsk. sykur
- 1 fiskiteningur
- salt eftir smekk
- ferskt kóríander, eftir smekk (má sleppa)
- chilí-olía
- niðursneiddur vorlaukur eftir smekk
- 1 límóna
Aðferð:
- Byrjið á því að skera laukinn og hvítlaukinn smátt niður og steikja upp úr olíunni.
- Bætið síðan engiferi og chili út á pönnuna ásamt því að rífa smá límónubörk út á. Hellið kókosmjólkinn semi er hellt út á pönnuna ásamt einum fiskiteningi og látið malla í um það bil 20 mínútur.
- Saltið þorskinn örlítið og raðið síðan út á pönnun og, hitið við miðlungs hita í um það bil 10 mínútur.
- Á meðan fiskurinn er að eldast er tilvalið að sjóða hrísgrjón.
- Þegar þið berið fiskinn fram fiskurinn og setjið á diskinn er upplagt að dreifa kóríander og vorlaukur yfir ásamt því að kreista smá límónasafa yfir.
- Toppið réttinn síðan með chili-olíunni.