Ljúffengt rjómaostapasta með risarækjum sem steinliggur

Þeir sem hafa dálæti af risarækjum og pasta eiga eftir …
Þeir sem hafa dálæti af risarækjum og pasta eiga eftir að elska þennan rétt. Svo ljúffengt og ostarnir toppa þennan rétt. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Sjávarréttapasta með bragðmiklum ostum er toppurinn á tilverunni með hækkandi sól. Nú er dymbilvikan hafin í öllum sínum skrúða og margir komnir í páskafrí. Þá er lag að matreiða ljúffengan pastarétt sem á án efa eftir að slá í gegn hjá þeim sem elska risarækjur og góða osta.

Til að mynda er rjómaostur með grillaðri papriku og chilli fullkominn í pastarétti og skagfirsku Goðdalaostarnir eru ómissandi með. Þessi bragðsamsetning getur ekki klikkað.

Heiðurinn af uppskriftinni á Thelma Þorbergsdóttir matarbloggari með meiru.

Rjómapasta með risarækjum

  • 500 g spaghetti eða annað pasta
  • 1 tsk. salt

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakkningu og setjið 1 tsk. af salti saman við vatnið.
  2. Geymið þar til kemur að lokaskrefinu.

Risarækjur

  • 450 g risarækjur
  • 1⁄2 tsk. chilli
  • 1⁄2 tsk. hvítlaukssalt
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 2 msk. ólífuolía

Aðferð:

  1. Setjið rækjurnar í skál ásamt kryddinu og blandið vel saman.
  2. Látið rækjurnar standa þar til sósan er tilbúin.

Pastasósa

  • 200 g rjómaostur með grillaðri papriku og chilli
  • 1 1⁄2 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • 1 dl pastasoð
  • 40 g Goðdala Feykir
  • 1⁄2 tsk. salt
  • 1 tsk. svartur pipar

Aðferð:

  1. Setjið rjómaost og matreiðslurjóma saman í pott og stillið yfir meðalháum hita og hrærið í þessu þar til osturinn hefur bráðnað.
  2. Bætið saman við pastasoði, rifnum Goðdala Feyki og kryddi.
  3. Hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  4. Setjið olíu á pönnu yfir háum hita og steikið rækjurnar í rúmar fjórar mínútur eða þar til þær eru orðnar bleikar að lit.
  5. Passið ykkur þó að steikja þær ekki of lengi þar sem þær geta orðið seigar.
  6. Þegar rækjurnar eru tilbúnar setjið þið pastað og rjómaostasósuna saman við rækjurnar og veltið pastanu vel upp úr sósunni svo það blandist allt vel saman.
  7. Berið fram með rifnum Goðdala Feyki og pipar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert