Alexander Jósef Alvarado, 22ja ára borgarbarn, sigraði háloftaþemakeppnina á Reykjavík Cocktail Week-hátíðinni í ár með drykknum „Red eye“ og útgeislun sinni sem draumabarþjóninn í háloftunum.
Alexander, alltaf kallaður Alex, hefur verið í þjónabransanum síðastliðin fimm ár og er menntaður framreiðslumaður frá Menntaskólanum í Kópavogi. Hann starfar á Jungel bar sem staðsettur er í miðborginni á Austurstræti 9.
„Ég hef lagt sérstaka áherslu á barþjóninn í um það bil eitt ár og finnst fátt skemmtilegra í dag en að föndra góða kokteila,“ segir Alex og er í skýjunum með sigurinn í háloftaþemakeppninni.
„Tilfinningin er frábær enda er þetta fyrsta keppnin sem ég sigra um ævina. Mér þótti háloftaþemað sérstaklega skemmtilegt þar sem pabbi minn er flugmaður svo frá því að ég var lítill strákur hafa háloftin verið hluti af mínu lífi. Ég hafði gaman að því að hleypa ímyndunaraflinu af stað fyrir þessa keppni.“
Alex hefur tekið þátt í fjórum keppnum. „Þó ekki á löngum tíma því mín fyrsta keppni var í janúar á þessu ári en þá tók ég þátt í Bombay Sapphire-keppninni þar sem ég var meðal 10 efstu í úrslitum.“
Aðspurður segir Alex að hann hafi ætlað sér sigur í keppninni.
„Í grunninn er ég mikill keppnismaður og þá sérstaklega þegar kemur að því sem ég brenn fyrir sem í dag er að blanda skemmtilega drykki, svo stefnan var að sjálfsögðu sigur. Mitt viðhorf er samt sem áður þannig að ef ég sigra ekki lít ég á það sem tækifæri til bætingar í næstu keppni.“
Hvað þarf að gera til að heilla dómnefndina upp úr skónum?
„Mín skoðun er sú að fyrst og fremst þurfi að koma fram við dómnefndina eins og hinn hefðbundna kúnni, veita góða kynningu á drykknum og ekki taka sjálfum sér of alvarlega. Húmor er eitthvað sem gott er að hafa líka því í flestum tilfellum á svona keppni að vera skemmtileg upplifun, gott að geta lagt stressið til hliðar.“
Hvenær vissir þú hvað þig langaði að gera þegar þú yrðir stór?
„Í æsku var ég alltaf frekar óviss með hvað ég vildi gera, sá alltaf fyrir mér að ég myndi vinna við eitthvað sem tengdist tölvuleikjum en stefnan fór heldur betur í aðra átt þegar ég skráði mig í framreiðslunám. Í náminu vann ég á mismunandi stöðum í veitingageiranum og ég man vel eftir þegar ég var hvattur til að kynna mér barinn betur. Það var þá sem einhver neisti kviknaði og hefur vaxið mjög hratt síðan.“
Alex hefur ekki alltaf ætlað sér að verða barþjónn og ekki fundið þessa ástríðu fyrr en nú síðastliðið ár. „Ég vissi lítið um starfið þar til ég kynntist því í náminu en í dag get ég sagt að ástríða mín fyrir starfinu sem barþjónn hafi vaxið mjög hratt og áhuginn verði sífellt meiri.
„Það sem er svo heillandi er hvað kokteilagerð er mikil list, að leyfa hugmyndaraflinu að fara á flug, meðhöndla alls konar hráefni, setja saman ólíkar bragðsamsetningar sem sumir myndu stundum ekki geta ímyndað sér að myndu fara vel saman í drykk.
Það sem heillar mig líka er hvað það er mikil þróun í gerð kokteila, það er alltaf eitthvað nýtt í gangi, ný hráefni til að vinna með. Það eru ýmsar spennandi leiðir til að framkalla magnaðar bragðupplifanir. Ég hef gaman að því að dunda mér í því jafnvel þó að það taki marga klukkutíma, útkoman getur verið þess virði. Þetta er í raun ferðalag sem endar aldrei,“ segir Alex sposkur á svipinn.
Hvernig myndir þú lýsa þínum barþjónastíl?
„Ég er með frekar svona,,módern‘‘ stíl, geri kokteila sem eru klassískir en finnst líka skemmtilegt að setja saman eitthvað nýtt og spennandi sem kemur á óvart.“
Hvaða hæfileikum þarf góður barþjónn að búa yfir að þínu mati?
„Ég myndi segja að það sem einkennir góðan barþjón sé að taka vel á móti viðskiptavininum með spjalli og fræðslu og leitast við að upplifun hans sé góð. Þar skiptir miklu máli að þjálfa sig í að lesa viðskiptavininn vel til að finna út hvaða drykk hann er að leitast eftir. Mjög mikilvægt er einnig að barþjónn hafi góða þekkingu á hráefninu sem hann er að vinna með og á mismunandi spíru sem í boði er á barnum.“
Átt þér þín uppáhaldsvín þegar þú ert að búa til kokteila?
„Já, ég myndi segja að þau væru nokkur en mitt allra uppáhaldsvín er Mezcal. Það kemur frá Oaxaca í Mexíkó og er búið til úr 30 mismunandi agave plöntum, vínið hefur sterkan reyktan keim og hægt er að leika sé mikið með það í gerð kokteila.
Í kokteilagerð er það hráefnið sem skiptir aðalmáli, að það sé ferskt og við á Jungle leggjum mikið upp úr því. Mér finnst einnig skipta máli að hráefnin séu búin til á staðnum frá grunni, þar má nefna síróp með mismunandi bragðtegundum og ferska safa eins og úr límónu, sítrónu og appelsínu. Það er mikill munur á drykk sem inniheldur nýkreistan appelsínusafa eða appelsínusafa úr fernu. Það skiptir máli að leggja vinnu í þennan undirbúning svo gestirnir okkar fái að sjálfsögðu hágæða drykki,“ segir Alex með bros á vör.
Alex deilir hér með lesendum uppskriftinni að sigurkokteilnum sem ber heitið „Red eye“. Drykkurinn er kominn á kokteilaseðilinn á Jungel barnum svo þeir sem treysta sér ekki í kokteilagerðina og langar að smakka geta skroppið á barinn og notið þess að fá alvöru háloftaupplifun hjá Alex.
Red eye
Aðferð: