Guðdómlegt páskabrauð með trönuberjum og appelsínu úr smiðju Árna

Árni Þorvarðarson bakari bakar ávallt páskabrauð fyrr sína nánustu sem …
Árni Þorvarðarson bakari bakar ávallt páskabrauð fyrr sína nánustu sem er bæði sætt og mjúkt og ilmurinn er svo lokkandi. mbl.is/Eyþór

Þetta er uppskrift að páskabrauði sem gleður, einstaklega mjúkt og ilmandi heimabrauð. Hið fullkomna brauð til að baka á skírdag eða morgni páskadags og vekja heimilisfólkið með lokkandi ilmi. Þetta er sætt og mjúkt brauð með appelsínukeim og trönuberjum og uppskriftin gefur 2 stór brauð eða 3 minni.

Ljúffenga páskabrauðið hans Árna sem á eftir að gleðja marga …
Ljúffenga páskabrauðið hans Árna sem á eftir að gleðja marga um páskana. mbl.is/Eyþór

Heiðurinn af þessari guðdómlegu uppskrift á Árni Þorvarðarson, bakari og fagstjóri við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi.

Hann vonar að lesendur njóti þess að prófa þessa uppskrift og finni gleðina sem felst í því að búa til eitthvað gott frá grunni. Það þarf oft ekki mikið til að skapa hlýju og ánægju á heimilinu – stundum er ilmandi brauð eða nýbakaður snúður nóg til að gera daginn betri. Njótið þess að deila þessu með öðrum.

Trönuberin passa ákaflega vel í páskabrauðið.
Trönuberin passa ákaflega vel í páskabrauðið. mbl.is/Eyþór

Páskabrauð með trönuberjum og appelsínu

  • 280 g volgt vatn
  • 1 stórt egg
  • 56 g sykur
  • 56 g smjör
  • 8 g salt (1½ tsk)
  • 14 g þurrger (ca 1 msk)
  • 600 g hveiti
  • 1–2 tsk appelsínuþykkni (eftir smekk)
  • 110 g trönuber
  • Egg til penslunar
  • Hnetur (valkvætt, til skrauts)

Aðferð:

Skref 1

  1. Byrjið á því að hnoða deigið.
  2. Setjið vatn, egg, sykur, smjör, salt, ger, hveiti og appelsínuþykkni í hrærivél (allt nema trönuber og hnetur).
  3. Hnoðið á hægum hraða í 4 mínútur og svo á miðlungshraða í aðrar 4 mínútur.
  4. Bætið rúsínum út í undir lok hnoðunar og látið blandast vel.

Skref 2

  1. Fyrsta hefun.
  2. Látið deigið hvíla í 20 mínútur undir plasti eða rökum klút.
  3. Skref 3
  4. Mótun á brauðinu
  5. Skiptið deiginu í tvennt (eða þrjá hluta fyrir minni brauð).
  6. Mótið í kúlur eða aflöng brauð.
  7. Látið hefast í 40 mínútur undir plasti eða klút.

Skref 4

  1. Þá er það skreyting og bakstur
  2. Penslið brauðin með eggi.
  3.  Skerið rák eftir endilöngu með beittum hníf.
  4.  Valkvætt, stráið hökkuðum hnetum í skurðinn fyrir aukið bragð og áferð.
  5.  Bakið við 200°c í 25 mínútur eða þar til brauðið er fallega brúnað.

Skref 5

  1. Kæling og geymsla.
  2. Kælið á grind.
  3. Berið fram volgt eða látið kólna og frystið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert