Elenora heldur áfram að toppa sig í eftirréttagerðinni

Krúttleg marenshreiður, líka falleg fyrir sumarið sem er handan við …
Krúttleg marenshreiður, líka falleg fyrir sumarið sem er handan við hornið. Ljósmynd/Elenora Rós

Elenora Rós Georgsdóttir, bakari með meiru, fór á kostum á dögunum á Instagram og TikTok þegar hún galdraði fram þennan dásamlega páskaeftirrétt.

„Ég fór fram og til baka með alls konar útgáfur af eftirréttum fyrir páskana í ár og eftir alls kyns tilraunir lenti ég á þessum skemmtilegu páskahreiðrum sem eru létt, fersk og mikið augnakonfekt,“ segir Elenora.

Ef þið eigið fullt af litlum súkkulaðieggjum er upplagt að leika listina eftir Elnoru og töfra fram þennan fallega og gómsæta eftirrétt. Hann passar líka vel á sumardaginn sem nálgast hratt því eggin eru líka boðberi fyrir sumarið. Nú eru fuglarnir í hreiðurgerð og styttist óðum í að ungar fari að brjótast út úr eggjunum.

Þegar þið farið í eftirréttagerðina byrjið þá á að búa til hindberjac-ompote þar sem það þarf að kólna vel áður en það fer í marenshreiðrin.

Sjáið handbragð Elenoru hér á Instagram.

View this post on Instagram

A post shared by Elenora Rós (@bakaranora)

Krúttlegur og fallegur eftirréttur sem gleður bæði augu og munn.
Krúttlegur og fallegur eftirréttur sem gleður bæði augu og munn. Ljósmynd/Elenora Rós

Páskahreiður úr smiðju Elenoru

Hindberja compote

  • 100 g sykur
  • 30 ml vatn
  • 370 g frosin hindber

Aðferð:

  1. Setjið öll hráefnin saman í pott og leyfið blöndunni að koma upp að suðu.
  2. Þegar blandan er farin að sjóða lækkið þá hitann og leyfið henni að malla í 8-10 mínútur.
  3. Setjið í box eða skál með plastfilmu yfir og setjið í kæli meðan þið gerið marensinn.

Marenshreiður

  • 6 eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 2 tsk. kartöflumjöl
  • Matarlitur að eigin vali

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn í 120*C og blástur.
  2. Gerið ofnplötu tilbúna og leggið til hliðar.
  3. Þeytið eggin þar til þau eru orðin léttþeytt og farin að freyða.
  4. Bætið þá sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og þeytið í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til marensinn er stífþeyttur.
  5. Bætið næst kartöflumjölinu og matarlitnum saman við marensinn með sleif.
  6. Setjið marensinn í sprautupoka og sprautið honum fallega á bökumarplötuna.
  7. Passið að skilja eftir lítið gat, til að mynda eins konar hreiður, fyrir fyllinguna.
  8. Bakið marenshreiðrin í u.þ.b. klukkutíma, slökkið á ofninum og leyfið þeim að kólna inni í ofni í um það bil hálftíma áður en þau eru tekin út úr ofninum til að sporna við að þau falli.

Mascarpone þeyttur rjómi

  • 300 ml rjómi
  • 85 g flórsykur
  • 225 g mascarpone rjómaostur

Fyrir skraut

  • 1 krukka Biscoff smyrja
  • 100 g Freyjusúkkulaði með saltkaramellukurli og rískúlum
  • 150 g Freyju mjólkursúkkulaðidropar
  • Freyju dessert páskaegg

Aðferð og samsetning:

  1. Þegar hreiðrin eru tilbúin og komin úr ofninum er saltkaramellu og ríssúkkulaðið ásamt mjólkursúkkulaðidropunum brætt saman yfir vatnsbaði eða hægt og rólega í örbylgjuofni.
  2. Passið að hræra vel í á meðan.
  3. Dýfið botninum á hreiðrunum í súkkulaðiblönduna og setjið inn í ísskáp til að leyfa súkkulaðinu að harðna.
  4. Á meðan er hægt að þeyta rjómann.
  5. Setjið öll hráefnin saman í skál og þeytið þar til rjóminn er stífþeyttur.
  6. Takið næst hreiðrin út úr kælinum.
  7. Byrjið á að fylla þau með Biscoff-smyrju, þar á eftir sprautið þá fyrsta lagi af rjómanum á og setjið síðan hindberja compote ofan í rjómann.
  8. Sprautið að lokum restinni af rjómanum á hreiðrin og toppið þau með dessert páskaeggi.
  9. Berið fram og njótið, hvort sem þið fagnið páskunum eða sumardeginum fyrsta.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert