Sumarlegur forréttur með rækjum úr smiðju Hönnu

Fallegur páska- og sumarlegur forréttur sem gleður bragðlaukana úr smiðju …
Fallegur páska- og sumarlegur forréttur sem gleður bragðlaukana úr smiðju Hönnu Thordarson. Samsett mynd

Hanna Thordarson, keramiker og matgæðingur með meiru, töfraði fram þennan ljúffenga forrétt fyrir páskana sem er líka mjög sumarlegur.

„Þetta er frískandi og góður réttur frá mömmu sem hún hefur í gegnum tíðina haft sem forrétt á páskadag. Framreiðslan er frjálsleg en rétturinn er afskaplega einfaldur og góður. Árlegur páskaforréttur sem gefur vísbendingu um að vorið sé framundan,“ segir Hanna um forréttinn.

Þar sem sumardagurinn fyrsti er handan við hornið, en hann er á fimmtudaginn næstkomandi 24. apríl, er upplagt að prófa þennan og fagna sumri með frísklegum forrétt sem gleður bragðlaukana.

Eggjablönduna er betra að gera daginn áður og geyma í kæli. Best er að láta rækjurnar þiðna í kæli yfir nótt.

Hanna er mikill fagurkeri og þekkt fyrir að vera snillingur …
Hanna er mikill fagurkeri og þekkt fyrir að vera snillingur í eldhúsinu líka. Ljósmynd/Aðsend

Sumarlegur forréttur með rækjum

Fyrir 8

Eggjablanda

  • Hálfur gulur laukur – saxaður smátt
  • 3 egg – harðsoðin
  • ½ dl olía
  • ½ dl sætt sinnep
  • Nýmalaður pipar

Aðferð:

  1. Harðsjóðið eggin. Látið suðuna koma upp – ekki of hratt þá springa eggin frekar.
  2. Látið vatnið sjóða en ekki bullsjóða í u.þ.b. 9 mínútur.
  3. Kælið eggin og takið skurnina af.
  4. Skerið eggin niður í eggjaskerara, a.m.k. þrisvar sinnum
  5. Setjið olíu og sinnep í skál og blandið saman.
  6. Blandið söxuðum lauk og eggjum saman við
  7. Kryddið til með smá pipar og smakkið til.
  8. Setjið í kæli og leyfið að taka sig – helst yfir nótt

Annað hráefni

  • 600 g rækjur
  • Maísbaunir, ferskar/frosnar og soðnar eða niðursoðnar
  • Ristað brauð, má sleppa

Hugmyndir að skrauti

  • Sítrónusneið
  • Steinselja
  • Hrogn
  • sneið/bátur af eggi
  • tómatsneið eða flís af niðurskorinni papriku

Aðferð og samsetning

  1. Hægt er að bera fram á ýmsan máta.
  2. T.d. má mynda hringlaga rækjuhreiður og setja eggjablönduna í miðjuna og skreyta með maisbaununum auk steinselju.
  3. Einnig er hægt að skera út hringlaga ristað brauð og raða eggjablöndunni og rækjunum ofan á.
  4. Þá er maísinn settur efst (gott að nota hringmót til að haldast betur þegar raðað er ofan á hvert annað – þegar hringformið er tekið dreifist maísinn yfir – fallegt skraut).
  5. Svo má bara fara einfalda leið og raða öllu bara á diskinn.
  6. Skreytið t.d. með sítrónusneið, eggjasneið, steinselju og/eða öðru grænmeti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert