Söngur Rebekku mun óma í Vínstofu Friðheima á morgun

Jazzsöngkonan Rebekka Blöndal mætir með tríóið sitt, Daða Birgisson og …
Jazzsöngkonan Rebekka Blöndal mætir með tríóið sitt, Daða Birgisson og Friðrik Örn á Vínstofuna á Friðheimum í Reykholti á morgun, föstudaginn 25. apríl. Samsett mynd

Sumardagskráin er hafin á Vínstofunni í Friðheimum í Reykholti en á morgun, föstudaginn 25. apríl, verður fyrsti viðburður sumarsins haldinn þegar jazzsöngkonan Rebekka Blöndal mætir með tríóið sitt, Daða Birgisson á píanó og Friðrik Örn á kontrabassa.

Tónleikaveislurnar sem haldnar hafa verið á Vínstofunni frá því hún opnaði sumarið 2023 hafa notið mikilla vinsælda og ávallt hefur verið troðið upp fyrir fullu húsi.

Söngur, spil og stemning mun óma í Vínstofu Friðheima með Rebekku og á efnisskránni verða lög eftir Rebekku í bland við þekkta jazzista.

Hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng

Rebekka hefur vakið nokkra athygli síðastliðin ár fyrir tónlist sína og framkomu. En Rebekka er meðal fremstu jazzsöngkvenna landsins og hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022 í flokki djass og blús.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 en húsið opnar klukkan 12:00 og því um að gera að mæta fyrr í mat og/eða drykk en nauðsynlegt er að bóka miða og borð fyrirfram. Tónleikagestir geta notið góðra veitinga fyrir og meðan á tónleikum stendur en þá er best að bóka borð því það er takmarkaður fjöldi sem kemst að.

Veitingarnar á Vinstofunni hafa notið mikilla hylli gesta líkt og á Friðheimum og eru í anda þess sem fjölskyldan ræktar. Nýjar og ferskar kryddjurtir, tómatar í öllum stærðum og gerðum ásamt jarðarberjum eru í forgrunni í réttunum svo fátt sé nefnt.

Vínsælasti rétturinn er kampavín með ferskum jarðarberjum

Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttir eigendur Friðheima ásamt börnum og tengdasyni. Dóttir þeirra Dóróthea Ármann og tengdasonur, Kristján Geir Gunnarsson, sjá um rekstur Vínstofunnar sem er með eindæmum glæsileg og fellur vel að umhverfinu og hugmyndafræði fjölskyldunnar.

Vinsælasti réttur Vínstofunnnar eða drykkur, fersk íslensk jarðarber með kampavíni.
Vinsælasti réttur Vínstofunnnar eða drykkur, fersk íslensk jarðarber með kampavíni. Ljósmynd/Aðsend

Nú hefur fjölskyldan bætt við sig jarðarberjaræktun sem fellur vel inn í starfsemina og má nefna að vinsælasti réttur eða drykkur Vínstofunnar er fersk jarðarber og kampavín.

Bókanir á tónleikana og í mat fara fram hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert