Alþjóðlegi Diskósúpudagurinn haldinn á þremur stöðum á landinu

Dóra Svavarsdóttir, eigandi og matreiðslumeistari Culina, er formaður Slow Food-samtakanna …
Dóra Svavarsdóttir, eigandi og matreiðslumeistari Culina, er formaður Slow Food-samtakanna á Íslandi. Samsett mynd

Alþjóðlegi Diskósúpudagurinn er um helgina; þá útbúa Slow Food-samtökin um allan heim súpur úr hráefni sem hefði átt að henda einhverra hluta vegna og gefa gestum og gangandi. Slow Food-samtökin á Íslandi taka þátt og verða með þrjá viðburði á þremur stöðum á landinu að því fram kemur í tilkynningu frá samtökunum. Dóra Svavarsdóttir, eigandi og matreiðslumeistari Culina, er formaður Slow Food-samtakanna á Íslandi.

Dískósúpudagurinn var haldin í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík í fyrra þar …
Dískósúpudagurinn var haldin í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík í fyrra þar sem fjölmargir lögðu leið sína til að njóta súpunnar. Ljósmynd/Aðsend

Viðburðirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

  • Stórhól í Skagafirði, Rúnalist Gallerí, laugardaginn 26. apríl frá klukkan 12:00 – 15:00, sjá nánar hér. Einnig verður líka boðið upp á kynningar á vörum smáframleiðenda á svæðinu og tækifæri til að hitta nýfædda kiðlinga og hvolpa.
  • Reykholti í Bláskógabyggð, laugardaginn 26. apríl, frá klukkan 11:00 – 17:00, sjá nánar hér. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Social Coffee og Stóra Plokk Daginn og boðið verður upp á rjúkandi heita Diskósúpu sem er verðskulduð verðlaun fyrir að koma og hjálpa til við að snyrta umhverfið.
  • Reykjavík, Jafnaseli í Breiðholti, sunnudaginn 27. apríl frá klukkan 11:30 – 13:00, sjá nánar hér. Viðburðurinn er í samstarfi við skipuleggjendur að Stóra Plokk Deginum og verður í tengslum við setningu á honum.

Fyrsti viðburðurinn var haldinn í Berlín árið 2012

Fyrsti Diskósúpu viðburðurinn var í Berlín árið 2012. Hópi ungmenna innan Slow Food-samtakanna blöskraði magnið af mat sem var að fara í ruslið. Þau söfnuðu saman hráefni, settu upp eldunaraðstöðu í gamalli vöruskemmu og svo var skellt í eitt frábært eldhúspartý. Plötusnúðar héldu uppi stuðinu og hópur sjálfboðaliða skrældi og skar og allt fór þetta í stóra súpupotta. Úr þessu varð til súpa fyrir 8000 manns.

Síðan þá hefur Diskósúpan slegið í gegn um heim allan sem bragðgóður og spennandi viðburður til að vekja athygli á því mikla vandamáli sem matarsóun er. Um þriðjungur allra matvæla fer til spillis. Mikil vitundarvakning hefur verið undanfarin ár, en því miður sýna rannsóknir að við höfum alltof litlu breytt. Matarsóun ein og sér er talin bera ábyrgð á losun 8 – 10% allra gróðurhúsalofttegunda. Auk þess sem hún eykur álag á framleiðslukerfi okkar, henni fylgir vatnssóun og orkusóun og eins eykur hún á misskiptingu í heiminum.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert