Undursamlega ljúffengir cinnabon-snúðar með ostakremi

Mjúkir og ilmandi snúðar með kanilsykri og rjómaostakremi – bakaðir …
Mjúkir og ilmandi snúðar með kanilsykri og rjómaostakremi – bakaðir í ramma. Þessir eru svo góðir að það er erfitt að standast þá. mbl.is/Eyþór

Það er fátt betra en lyktin sem fyllir heimilið af nýbökuðum kanilsnúðum. Þessi uppskrift er innblásin af hinum sívinsælu cinnabon-snúðum, mjúkir, dúnmjúkir botnar með ríkri kanilfyllingu og silkimjúku ostakremi sem bráðnar yfir snúðana. Hvort sem þið eruð að bjóða upp á kaffitímasnúða eða dekra við fjölskylduna í helgarbakstri, þá slær þessi uppskrift alltaf í gegn.

Heiðurinn að uppskriftinni á Árni Þorvarðarson, bakari og fagstjóri við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi, sem kemur eflaust fáum á óvart, en hann hefur verið iðinn að deila með lesendum matarvefsins uppskriftum úr smiðju sinni sem gleðja bragðlaukana og ekki síst sálina sem elskar ljúffengt bakkelsi og kökur.

Árni Þorvarðarson bak­ari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í …
Árni Þorvarðarson bak­ari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi kann listina að gleðja sitt fólk. með ljúffengu bakkelsi. mbl.is/Eyþór

Vonandi njótið þið þess að prófa þessa uppskrift og finnið gleðina sem felst í því að búa til eitthvað gott frá grunni. Það þarf oft ekki mikið til að skapa hlýju og ánægju á heimilinu, stundum er ilmandi nýbakaður snúður nóg til að gera daginn betri.

Cinnabon-snúðar með ostakremi

Deig

  • 300 g volgt vatn
  • 60 g sykur
  • 4 msk. olía
  • 1 tsk. salt
  • 1 msk. þurrger
  • 600 g hveiti

Fylling

  • 2 tsk. sykur
  • 2 tsk. púðursykur
  • 2 tsk. kanill
  • 2 tsk. bráðið smjör

Ostakrem

  • 37 g rjómaostur
  • 75 g mjúkt smjör
  • ½ tsk. vanilludropar
  • 200 g flórsykur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að virkja gerið með því að blanda því saman við volgt vatn og sykur.
  2. Leyfið því að freyða og koma sér í gang, bætið olíu og salti við, og síðan hveitinu smátt og smátt.
  3. Hnoðið þar til deigið er mjúkt, slétt og aðeins klístrað – þetta er hjartað í góðum snúðum.
  4. Setjið deigið í skál, breiðið viskastykki yfir og leyfið því að hefast í ró og næði í um 15 mínútur.
  5. Rúllið næst deiginu út í stóran ferhyrning, smyrjið yfir bráðið smjör og stráið síðan kanilsykursblöndunni yfir í jafnri lögun.
  6. Rúllið upp í þétta rúllu og skerið í sneiðar með beittum hníf.
  7. Raðið snúðunum í bökunarform og leyfið þeim að lyfta sér aftur í um 40 mínútur, svo þeir verði léttir og mjúkir.
  8. Bakaðu við 180°C hita í 12-15 mínútur þar til snúðarnir eru orðnir gullinbrúnir og ilmurinn fyllir húsið.
  9. Að lokum, á meðan snúðarnir eru enn heitir, smyrjið rjómaostakremi yfir þá.
  10. Kremið bráðnar ofan í hverja rifu og gerir hvern bita silkimjúkan og syndsamlega góðan.
  11. Berið fram ylvolga og njótið með ykkar besta fólki.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert