Er ekki kominn tími á alvöru sumarþeyting?

Anna Guðný býður upp á hollan og góðan sumarþeyting til …
Anna Guðný býður upp á hollan og góðan sumarþeyting til að fagna komu sumarsins. Samsett mynd

Vegna tilkomu sumarsins sem margir hafa beðið eftir er vert að fagna með alvörsumarþeytingi sem gleður sálina. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Önnu Guðnýjar sem heldur úti bloggsíðunni Heilsa og vellíðan. Hún hefur mikið dálæti af því að gleðja aðra með hollum og góðum uppskriftum sem bæta heilsu og vellíðan.

En sjálf hefur hún upplifað mikla betrumbætingu á eigin heilsu og vellíðan eftir að hún veitti andlegri heilsu og hreinu mataræði meiri athygli.

Þessi er bæði bragðgóður og hollur og hver og einn getur leikið sér með hvað hann vill setja ofan á gleðina.

Sumarþeytingur

Fyrir 1-2

  • 4 bollar frosið mangó
  • 1 banani
  • 1 appelsína
  • 1 bolli kókosmjólk
  • 1 tsk. túrmerikduft
  • 1/3 tsk. vanilluduft

Ofan á

  • ½ banani, í sneiðum
  • Kókos- og möndlusmjör eftir smekk
  • Kókosflögur eftir smekk
  • Kínóa-popp eftir smekk
  • Ferskir ávextir að eigin vali ef vill
  • Rósir eða önnur ætisblóm ef vill

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í þeytinginn saman í blandara og blandið vel saman.
  2. Setjið blönduna í skál.
  3. Setjið síðan kræsingar ofan á sem ykkur lístir líkt og Anna Guðný gerir í myndbandinu.
  4. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert