Guðrún Erla heldur áfram að toppa sig með ómótstæðilegum kræsingum

Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og konditor kom með þessa himnesku …
Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og konditor kom með þessa himnesku samsetningu af súkkulaði brownies. mbl.is/Karítas

Guðrún Erla Guðjónsdóttir bakari og konditor kom með þessa himnesku samsetningu af súkkulaði brownies með KitKat-bitum sem eru blandaðir bæði inn í deigið og settir ofan á þannig að hver munnbiti fær hina fullkomnu blöndu af bæði mjúkri og stökkri áferð.

„Þessi klassísku brownies með smá tvisti kitla bragðlaukana og uppfylla svo sannarlega súkkulaðilöngunina,“ segir Guðrún sem er alsæl með útkomuna.

„Þetta er hin fullkomna veislu- eða helgarsæla sem allir geta gert. Uppskriftin er fljótleg, barnvæn og algjörlega ómótstæðileg,“ bætir Guðrún við.

Hér á TikTok má sjá skref fyrir skref hvernig Guðrún töfrar fram þessa auðveldu uppskrift sem er varla hægt að klúðra.

@danol_matvara Sjúklega góðar og einfaldar KitKat brownies sem klikka ekki🙌😍 Mælum með að prufa! Uppskrift í ummælum. #íslensktiktok #fyrirþigsíða #fyrirþig #íslenskt #súkkulaði #nammi #fyp #kitkat ♬ Hip Hop, Chill, Reading, Night, Cafe(1547706) - kuwanoyu
„Þetta er hin fullkomna veislu- eða helgarsæla sem allir geta …
„Þetta er hin fullkomna veislu- eða helgarsæla sem allir geta gert.“ Ljósmynd/Guðrún Erla Guðjónsdóttir

KitKat Brownies

  • 113 g dökkt súkkulaði
  • 170 g smjör
  • 225 g sykur
  • 2 egg
  • 94 g hveiti
  • 25 g kakó
  • 100 g KitKat, saxað í bita
  • 4 Kit Kat plötur

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn við 180°C.
  2. Bræðið smjör og súkkulaði saman.
  3. Hrærið eggjunum og sykrinum saman og bætið kældu súkkulaðiblöndunni við.
  4. Setjið síðan hveiti og kakó út í og blandið vel saman.
  5. Saxið KitKat í bita og blandið við.
  6. Hellið blöndunni í form og bakið í ofni í 20 – 25 mínútur.
  7. Raðið KitKat ofan á kökuna meðan hún er enn þá heit og leyfið að bráðna smá til að búa til krem.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert