Girnilegur ofnbakaður fiskréttur með mozzarella-ostakúlum

Girnilegur ofnbakaður fiskréttur með mozzarella-ostakúlum og pestó sem bráðnar í …
Girnilegur ofnbakaður fiskréttur með mozzarella-ostakúlum og pestó sem bráðnar í munni. Ljósmynd/Helga Magga

Þessi fiskréttur er bæði fljótlegur í gerð og bragðgóður, fullkominn til að njóta á mánudagskvöldi. Í réttinum er pestó og mozzarella-ostakúlur sem gefa svo gott bragð. Gott er að bera fiskréttinn fram með hrísgrjónum eða bankabyggi og jafnvel fersku salati.

Heiðurinn af uppskriftinni á Helga Magga heilsumarkþjálfi og samfélagsmiðlastjarna en hún gerði uppskriftina fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Ofnbakaður fiskréttur með mozzarella-ostakúlum

Fyrir 4-5

  • 860 g ýsuflök
  • 180 g rautt pestó
  • 1 dós mozzarella kúlur eða perlur
  • 110 g döðlur (10-12 stk.)
  • basilíka, handfylli
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á að skola fiskinn og þerra.
  2. Hitið ofninn í 180°C.
  3. Skerið flökin niður í hæfilega stóra bita og raðið fisknum í botninn á eldföstu móti.
  4. Kryddið fiskinn með salti og pipar.
  5. Setjið rauða pestóið yfir fiskinn og dreifið því vel yfir alla bitana.
  6. Skerið döðlurnar í bita og raðið yfir fiskinn.
  7. Setjið mozzarella-kúlurnar yfir fiskinn ásamt niðurskorinni ferskri basilíku.
  8. Setjið fatið inn í ofn við 180°C hita og bakið í 25 mínútur.
  9. Á meðan er tilvalið að sjóða hrísgrjón, útbúa salat eða annað meðlæti sem þið kjósið að hafa með fiskinum.
  10. Berið fram og njótið.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert