Súkkulaði- og eftirréttameistarinn Juan Gutierrez heillaði fagfólkið upp úr skónum

Súkkulaði- og eftirréttameistarinn Juan Gutierrez hélt glæsilegt fimm daga Masterclass-námskeið …
Súkkulaði- og eftirréttameistarinn Juan Gutierrez hélt glæsilegt fimm daga Masterclass-námskeið í eftirréttagerð og uppsetningu eftirrétta og í konfektgerð eða „Bon Bon“ sem sló í gegn. Samsett mynd

Í byrjun apríl hélt Iðan Fræðslusetur, í samstarfi við súkkulaði- og eftirréttameistarann Juan Gutierrez, glæsilegt fimm daga Masterclass-námskeið í eftirréttagerð og uppsetningu eftirrétta og í konfektgerð eða „Bon Bon“ eins og Gutierrez kýs að kalla það. Námskeiðið var haldið í kennslueldhúsi Iðunnar og Matvís stéttarfélags að Stórhöfða 31.

Allir vildu eiga myndir af dýrðinni á símunum sínum. Skemmtilegt …
Allir vildu eiga myndir af dýrðinni á símunum sínum. Skemmtilegt sjónarhorn frá námskeiðinu þegar meistarinn sýnir listir sínar. Ljósmynd/Karl Petterson

Áhrifin munu án efa sjást á veitingastöðum og bakaríum

Námskeiðin voru ætluð fagfólki á veitingastöðum og í bakaríum sem vildi tileinka sér nýjustu aðferðir og hugmyndir í eftirrétta- og konfektgerð. Ekki er ólíklegt að áhrifa námskeiðanna megi vænta á veitingastöðum og bakaríum víða um land á næstunni.

Á námskeiðunum fór Gutierrez í allt það nýjasta í eftirréttagerð sem og í vinnu með súkkulaði og litafræði í konfektgerð. Axel Þorsteinsson, bakari og konditor hjá Hygge Coffee & Micro Bakery, var Gutierrez til aðstoðar á námskeiðinu.

Gleðin var í fyrirrúmi á námskeiðinu.
Gleðin var í fyrirrúmi á námskeiðinu. Ljósmynd/Karl Petterson

Meistarakokkurinn Gutierrez sló í gegn árið 2022 þegar hann varð hlutskarpastur í hinum vinsæla þætti School of Chocolate á Netflix. Hann á stóran hóp fylgjenda og það má segja að þessir þættir hafi kyndað enn frekar undir frægð hans í faginu.

Einbeitiningin skein úr andliti þátttakenda.
Einbeitiningin skein úr andliti þátttakenda. Ljósmynd/Karl Petterson

„Gutierrez þykir vera meðal fremstu og færustu eftirréttameistara heims, enda eru réttirnir hans meira en bara sælgæti, þeir bjóða upp á matarupplifanir sem segja sögur,“ segir Axel og bætir við að það hafi verið lærdómsríkt og mikil upplifun að taka þátt í þessu námskeiði með honum.

Gutierrez sýnir rétta handbragðið.
Gutierrez sýnir rétta handbragðið.

Sækir innblástur sinn til fjölbreyttrar menningar

„Í sköpun sinni heiðrar Gutierrez bragð og hefðir hvaðanæva úr heiminum. Hann sækir innblástur til fjölbreyttrar menningar Mexíkó, Ítalíu, Indlands og Bandaríkjanna en hjartað slær þó alltaf sterkast með heimalandi hans, Kólumbíu,“ segir Axel og bætir við að það hafi verið mikill fengur að fá meistarann hingað til lands til að bæta við þekkinguna.

Ástríðan skein úr andliti þátttakenda á námskeiðinu.
Ástríðan skein úr andliti þátttakenda á námskeiðinu. Ljósmynd/Karl Petterson

Fyrir utan eldhúsið hefur Juan brennandi áhuga á menntun og leiðsögn. Hann ferðast um allan heim og kennir súkkulaði- og eftirréttatækni, sem veitir innblástur fyrir næstu kynslóð eftirréttakokka. Það má með sanni segja að hann hafi heillað fagfólkið sem tók þátt í námskeiðinu upp úr skónum.

Hópurinn sem tók þá í námskeiðinu og bætti við sig …
Hópurinn sem tók þá í námskeiðinu og bætti við sig þekkingu í súkkalði- og eftirréttagerð. Ljósmynd/Karl Petterson

Á námskeiðinu var mikil áhersla lögð á árstíðarbundið hráefni eins og sjá má á matseðlunum sem unnið var með hér fyrir neðan ásamt myndaveislu af réttunum sem eru ómótstæðilegir á að líta.

Matseðlarnir á námskeiðinu

Eftirréttir:

Vetur

KÓKOS & MONGO MONGO (GLÚTENFRÍTT & VEGAN) 
Kókos sorbet, Mongo Mongo & kókossvampur 


MOCHI SVART SESAM
Mochi-svampur, svart sesam, pralín og kolaís

SÚKKULAÐI & PIPARMINTA
Súkkulaðimús, Peppermint Streusel & súkkulaðisvampur

Vor

JARÐARBER OG RJÓMI
Mascarpone-mús, bleikur piparkornssorbet og jarðarberjasósa

MANGÓ & KÓKOS (VEGAN)
Kókosmús, þjappað mangó og mangó sorbet

RÓS & LITCHI
Rósaþeyttur Ganache, Hindberja Cremeux & Pistasíusvampur

Sumar

KIRSUBER OG PISTASÍUHNETUR (VEGAN)
Pistasíumús, kirsuberjasvampur og kirsuberjasorbet

MANDARÍNUR OG PASSION ÁVÖXTUR (GLÚTENFRÍTT)
Mandaríunís, Vanillu Creme Brûlée & Passion ávaxtagel

SÓLBLÓM OG BÍFLUGUFRJÓKORN
Sólblómakaka, býflugufrjókorn og mjólkurís

Haust

SMJÖR & POPP
Smjörkaka, poppís og sveigjanlegur ganache

EPLA CIDER OG PECAN HNETUR (VEGAN)
Pecan hnetu Pralinee, eplakleinuhringir og eplasorbet

BYGG OG KARAMELLA
Byggbúðingur, karamellufroða og dökkur bjórís

Konfekt:

JARÐARBER

Jarðarberjasulta, jarðarberjakurl og vanilluganache

MILO

Milo ganache og Milo kurl

OSTAKAKA MARACUYA

Ástríðuávaxtagel og Ganache de Cheesecake

MORGUNKORN

Korn ganache og kornkurl

HESSILHNETUR

Heslihnetupralín

KAFFI

Kaffigel og kaffi ganache

PISTASÍUHNETUR

Pistasíu ganache og pistasíu marsípan

SVÖRT SESAM OSTAKAKA

Vanillu ganache og svart sesam pralín

Sjáið myndir af kræsingunum sem voru töfraðar fram, algjört augnakonfekt að njóta þessarar veislu.

 

 

 

Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
Ljósmynd/Karl Petterson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert