„Ég byrjaði á þessu heima í eldhúsinu fyrir 15 árum“

Karen Jónsdóttir, alla jafna kölluð Kaja, segir frá nokkrum skemmtilegum …
Karen Jónsdóttir, alla jafna kölluð Kaja, segir frá nokkrum skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karen Jónsdóttir frumkvöðull og eigandi Kaja Organic, alla jafna kölluð Kaja, ljóstrar upp skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar og það sem koma skal.

Kaja er mikil fjölskyldumanneskja og nýtur sín þessa dagana í ömmuhlutverkinu. „Ég er að detta í 58 aldursárið svo sumir segja að ég sé komin af léttasta skeiðinu. Ég og eiginmaður minn, Kristján Baldvinsson, eigum tvö uppkomin börn. Að auki erum við svo lánsöm að eiga barnabörn, en á föstudaginn var komu tvær pínu litlar stelpur í heiminn sem eru fimmta og sjötta barnabarnið okkar, svo ömmuhlutverkið er að koma sterkt inn,“ segir Kaja og brosir hringinn.

Fimm daga safahreinsum með 25 mismunandi söfum

Síðastliðin 13 ár hefur Kaja rekið fyrirtækið Kaja Organic en þar einbeitir hún sér að lífrænt vottaðri og glútenlausri framleiðslu á alls konar matvöru. Eitt af því sem hún stendur einnig fyrir er safahreinsun sem nýtur mikilla vinsælda.

Safahreinsun almennt er hrein snilld en safahreinsun Kaju samanstendur af 5 daga prógrammi þar sem þú drekkur 5 mismunandi safa/þeytinga yfir daginn. Markmiðið er að létta á kerfinu svo það nái að hreinsa og fara í það sem ég kalla viðgerðarham, losna við bjúg, bólgur og laga til í þarmaflórunni,“ segir Kaja.

Kaja segist hafa prófað safahreinsunina fyrst fyrir 15 árum og hún hafi gefið henni góða raun.

Þetta er eitthvað sem ég byrjaði á heima í eldhúsi fyrir um það bil 15 árum, síðan hefur bæði hreinsunin þróast og fleiri hafa komið að borðinu, svo að endanum var ekkert annað en að taka þetta í framleiðsluferli.“

Kaja stendur fyrir safahreinsun sem nýtur mikilla vinsælda og er …
Kaja stendur fyrir safahreinsun sem nýtur mikilla vinsælda og er fimm daga prógramm. Ljósmynd/Aðsend

Kaja segir að viðtökurnar hafi farið fram úr hennar björtustu vonum. „Viðtökur hafa verið góðar svo við höfum verið hægt og bítandi að bæta við hreinsunum. Til að byrja með vorum við að bjóða upp á safahreinsunina þrisvar sinnum á ári en í dag erum við komin upp í fimmtán hreinsanir á ári og erum alltaf að bæta við,“ segir Kaja.

„En hver hreinsun inniheldur 25 mismunandi safa og 28 mismunandi hráefni þá þarf mikla skipulagningu svo allt gangi saman. Við notum ýmist lífrænt vottað og íslensk hráefni svo flækjustigið er mikið,“ bætir Kaja við.

Margt algjörlega óætt

Kaja hefur líka ástríðu fyrir mat og matargerð. „Matarástríðan er til staðar en brýst kannski út á annan hátt en hefðbundið er því ég veit ekkert skemmtilegra en að blanda hinu og þessu saman til að sjá hver útkoman verður,“ segir hún og hlær.

„Ansi margt skrítið sem kemur út úr þessu og margt algjörlega óætt. En þannig lærir maður inn á hráefnin og svo detta inn snilldarútkomur annað slagið, eins og gellur í chili-raspi með hindberjasultu, algjör snilld.“

Grípur oft í 80% súkkulaði

Kaja svarar hér nokkrum laufléttum spurningum um matarvenjur sínar og vel það.

Hvað færðu þér í morgunmat?

„Ætti varla að segja frá því, en það eru 2 bollar af Cappuccino með barista haframjólk.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Ég er naslari, gríp oft í súkkulaði, 80% súkkulaði, það er algjör klassi ásamt möndlum.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

Það gleymist ansi oft en er að koma mér í það að fá mér góðan þeyting í hádeginu. Þá nota ég möndlumjólk, collagenprótein frá Feel Iceland, ½ banana, ½ epli, góða slettu af tahini, EVE-vítamin, 1 tsk. kanil og ½ tsk. af MSM í þeytinginn og að lokum stendur til að bæta mangó út í eftir að hafa horft á þátt á RUV í gær.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Það er einfalt, smjör.“

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Það er nú bara Esjubraut 28, lambahryggur eldaður í Air Fryer og bernaise a la Kiddi Balda.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Ég nota Kaju pítsabotna þar sem ég þoli ekki glúten, en best finnst mér chili-túnfiskur, laukur, ólífur og ananas.“

Leyfir sér einu sinni á ári að fá sér pylsu

Hvað færð þú þér á pylsuna þínu?

„Að fá mér pylsu er eitthvað sem ég leyfi mér aðeins einu sinni á ári. Þá er það hrár laukur, remolaði og mikið sinnep ofan á pylsuna, gengur ekki að hafa það undir.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

Með fisk eru það kartöflur, með kjöti er það salat.“

Uppáhaldsdrykkurinn þinn?

Sódavatn.“

Ertu með æði fyrir einhverju þessa dagana?

„Já, frækex Kaju með norskum geitaosti og sjálfsagt smjör á milli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert