Þessi fiskréttur er í einu orði sagt ómótstæðilega góður og virkilega flottur til að bjóða upp á þegar matarboð skal halda. Þessa uppskrift fékk Hanna Thordarson, matgæðingur og leirlistakona, hjá Elínu vinkonu sinni en hún hefur notað hana í matarboðum við góðan orðstír.
„Áferðin á fiskinum minnir aðeins á nætursaltaðan þorsk þar sem hann hefur legið í saltri sojasósunni. Mér finnst gott að bjóða upp á mangó-chutney og sýrðan rjóma sem meðlæti. Sýrða rjómann má aðeins poppa upp með ferskri kryddjurt eins og basil eða steinselju,“ segir Hanna sem er afar ánægð með hversu vel lukkaðist til með fiskinn í síðasta matarboði.
Hanna er iðin við að deila girnilegum og spennandi uppskriftum á heimasíðu sinni hér.
Maríneraður tandoori þorskhnakki
Fiskur
Marínering
- 1 dl sojasósa
- 1 dl góð olía
- 1 dl steinhreinsaðar döðlur (má líka nota púðursykur)
- 1 msk. Tandoori-krydd
- 3 hvítlauksrif, skorin smátt
- 2 x 2 cm bútur af fersku engiferi
- Nokkur blöð af ferskri basil eða 1 tsk basil (má sleppa)
- 1 – 2 tsk. nýmalaður svartur pipar
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið nema fiskinn saman í matvinnsluvél og maukið saman.
- Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita og látið liggja í maríneringunni í a.m.k. 3 klukkustundir fyrir eldun.
- Stillið ofninn á 170°C (yfir- og undirhita).
- Steikið fiskinn á rjúkandi heitri grillpönnu eða grillið á útigrilli.
- Steikið á báðum hliðum til þess að fá fallegan lit á fiskinn.
- Það þarf ekki að setja feiti á pönnuna þar sem olía er í maríneringunni en smá smjörklípa gefur gott bragð.
- Setjið síðan fiskinn í eldfast fat ásamt því sem eftir er af maríneringunni.
- Eldið inni í ofni í 10 – 13 mínútur, það fer aðeins eftir þykkt bitanna.
- Berið fram með sætkartöflumús og fersku salati.
- Mangó-chuthney passar líka vel með og þá er nauðsynlegt að hafa sýrðan rjóma.Ef gera á sérstaklega vel við sig er gott að blanda ferskri kryddjurt saman við eins og basil eða steinselju.