Töfraginið frá Íslandi vann til gullverðlauna á World Gin Awards

Hákon Freyr Hovdenak og Brynja Hjaltalín eigendur Hovdenak Distillery eimingarhússins …
Hákon Freyr Hovdenak og Brynja Hjaltalín eigendur Hovdenak Distillery eimingarhússins og hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir vörur sínar. Ljósmynd/Aðsend

Stuðlaberg Blue Gin vann til gullverðlauna í einni stærstu ginkeppni heims, World Gin Awards, sem haldin var í Englandi á dögunum. Hákon Freyr Hovdenak og konan hans Brynja Hjaltalín, eigendur Hovdenak Distillery eimingarhússins, hafa unnið til fjölda verðlauna fyrir vörur sínar undanfarin misseri og vakið athygli á erlendum vettvangi.

Töfraginið, Stuðlaberg Blue Gin, breytir um lit þegar tóniki er bætt við það. Það eru hreinir töfrar að horfa á breytinguna og sjá þetta gerast. Það vann til gullverðlauna í blindu smakki á dögunum og sló rækilega í gegn.

Stuðlaberg Blue Gin vann til gullverðlauna og er gjarnan kallað …
Stuðlaberg Blue Gin vann til gullverðlauna og er gjarnan kallað töfraginið þar sem það breytir um lit þegar tóniki er hellt út í það. Ljósmynd/Aðsend

Verður fagurbelikt á litinn

„Við tókum eitt mest verðlaunaða ginið sem framleitt er á Íslandi, Stuðlaberg Gin, og umbreyttum því í þetta nýja æði „color changing gin“ eða blátt gin. Blái liturinn kemur frá jurtinni Butterfly pea sem gefur þennan fallega lit. Það skemmtilega við jurtina er hve viðkvæm hún er við sýrustig, þess vegna breytir hún um lit þegar tóniki er hellt við ginið og þá verður það fagurbleikt í litinn,“ segir Hákon með bros á vör og bætir við að ginið sérstaklega skemmtilegt til að bjóða upp á í kokteilboði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert