„Á meðan ég var sjálfur róni þegar kom að matargerð“

Björgvin Franz Gíslason ljóstrar upp skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar …
Björgvin Franz Gíslason ljóstrar upp skemmtilegum staðreyndum um matarvenjur sínar og fleiru til. mbl.is/Karítas

Björgvin Franz Gíslason, leikari og söngvari með meiru, gefur lesendum innsýn í matarvenjur sínar og skemmtilegheitin kringum þær.

Björgvin er ávallt í mörgum hlutverkum, ekki bara á leiksviðinu heldur líka í einkalífinu en hann er sonur, vinur og pabbi eins og hann segir sjálfur frá þó að honum finnist stelpurnar sínar vera orðnar allt of stórar.

Henti oftast einhverju frosnu inn í ofn

Björgvin hefur mikla ástríðu fyrir matargerð, og mun meiri en marga myndi gruna, en hún kom frekar seint.

„Ég varð ástríðufullur fyrir góðri matargerð þegar ég bjó í Minneapolis en þá var vinur minn og nágranni, hann Gísli, alltaf að elda gómsætar steikur, „slow cooged chili“ eða „artician“ pítsur. Á meðan var ég sjálfur „róni“ þegar kom að matargerð; þ.e. ég nennti einfaldlega ekki að matreiða. Ég henti oftast einhverju frosnu inn í ofninn þangað til dætur mínar gerðu uppreisn og neituðu að borða þetta drasl eða það sem var oftast kallað í kaldhæðni „Cuisine Le Trailer“, segir Björgvin og hlær.

„Eftir það fór ég á fullt að kynna mér „kid friendly meals“ og þá fékk ég allt í einu ástríðuna og finnst gríðarlega skemmtilegt að elda í dag. Ég fer nánast í trans á meðan ég hlusta á góðar plötur og gleðst mest þegar ég heyri: „Vá hvað þetta er gott.“

Matargerð hans breytist aðeins á sumrin en þó ekki alfarið í grillmat. „Ég fer stundum í grillmatinn en finn að mig langar að borða eitthvað létt á sumrin og meira salat.“

Björgvin Franz er mikill djúsmaður og elskar fátt meira en …
Björgvin Franz er mikill djúsmaður og elskar fátt meira en berjadjús. mbl.is/Karítas

Linsoðin egg með kavíar eða salti

Björgvin gaf sér tíma í að svara nokkrum laufléttum spurningum um matarvenjur sínar og ljóstrar er upp örfáum leyndarmálum í leiðinni.

Hvað færðu þér í morgunmat?

„Ég fæ mér oftast heimatilbúinn þeyting með öllu mögulegu sem er gott fyrir þarmaflóruna. Í honum eru chia- og hörfræ, mangó, sojamjólk og djús. Einnig eru linsoðin egg með kavíar eða salti vinsæl hjá mér. Og ekki má gleyma kaffinu.“

Borðar þú oft á milli mála og hvað þá helst?

„Já, ég verð úrillur eða missi orku ef ég borða ekki á milli mála. Helst eitthvað eins og thin crisp með túnfisksalati, hnetumix og svo auðvitað mikið vatn sem orkugjafi og ég er náttúrulega algjör kaffifíkill.“

Finnst þér ómissandi að borða hádegisverð?

„Já, ég borða stundum minna á morgnana en þeim mun meira í hádeginu. Þá er það fiskur eða kjúklingur sem kemur til greina, helst með brúnum hrísgrjónum eða kínóa, salati og ég vil hafa mikið af dressingu.“

Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?

„Frosh smoothie, djús en ég er algjör „djúsari“ og egg. Helst vil ég líka eiga bláber og jarðarber.“

Fer á Gló þegar hann er stilltur

Þegar þú ætlar að gera vel við þig í mat og drykk og velur veitingastað til að fara á, hvert ferðu?

„Djúpsteiktir rótsterkir vængir á Winging it, BBQ-rif á „Dirty Burger and Ribs“ en svo stundum er ég stiltur og fer á Gló og fæ mér hollari útgáfuna af einhverjum kjúklingarétti.“

Hvað vilt þú á pítsuna þína?

„Pepperóní, lauk, sveppi, piparost og stundum hráskinku og chili/hvítlauksolíu.“

Hvað færð þú þér á pylsuna þínu?

„Eina með öllu og mikið sinnep, þá meina ég mikið sinnep.“

Elskar grísarifjur úr Costco

Hver er uppáhaldsgrillrétturinn þinn?

„Grísarifjur úr Costco, þær eru nánast bara fita og já, ég veit að ég ætti ekki að borða þær en ég elska þær samt.“

Áttu grill? Hvort heillar þig meira gas- eða kolagrill?

„Ég á geggjað Weber-gasgrill sem ég keypti í Bandaríkjunum árið 2014 og það er ennþá í góðu standi.“

Hvort velur þú kartöflur eða salat á diskinn þinn?

„Bæði.“

Hver er uppáhaldsdrykkurinn þinn?

„Berjadjús.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert