Átta verðlaun á þremur árum

Birgir Már Sigurðsson framkvæmdastjóri Þoran Distillery sem framleiðir Marberg-ginið sem …
Birgir Már Sigurðsson framkvæmdastjóri Þoran Distillery sem framleiðir Marberg-ginið sem er að fara sigurför um heiminn þessa dagana. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska ginið Marberg hlaut á dögunum gullverðlaun frá London Spirits Competition, en sú keppni þykir afar ströng og er það vissulega saga til næsta bæjar þegar íslenskar vörur vinna þar verðlaun.

Þetta eru áttundu verðlaunin sem Marberg hlýtur frá því það kom út árið 2023, en í þetta skiptið var það Marberg Coast Guard-ginið sem hlaut gullverðlaunin.

„Coast Guard-ginið okkar er ákveðin skírskotun í stíl af gini sem kallast ‘navy strength’, en gin í þeim flokki þurfa að vera með að minnsta kosti 57% vínanda. Þannig að áskorunin er að reyna að hafa það eins mjúkt og hægt er en samt í þessum háa styrk,” segir Birgir Már Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þoran Distillery sem framleiðir Marberg-gin.

Framreiðslan fer öll fram út á Granda við gömlu höfnina …
Framreiðslan fer öll fram út á Granda við gömlu höfnina í vesturbæ Reykjavíkur. Ljósmynd/Aðsend

„Við höfum alltaf reynt að tengja okkar vörur við sjóinn, bæði vegna þess að við notum m.a. íslenskt söl og beltisþara í vörunum okkar, auk þess sem framleiðslan okkar er nú stödd á gamla hafnarsvæðinu við Granda,” bætir Birgir við.

Birgir er einbeittur við vinnu sína.
Birgir er einbeittur við vinnu sína. Ljósmynd/Aðsend

Marberg hlaut einnig gullverðlaun frá Global Gin Masters árið 2024, var valið besta þurra gin Íslands og hlaut að auki gullverðlaun fyrir hönnun frá World Gin Awards árið 2023.

Birgir segist alltaf reyna að tengja vörur þeirra við sjóinn, …
Birgir segist alltaf reyna að tengja vörur þeirra við sjóinn, bæði vegna þess að í þær er m.a. notað íslenskt söl og beltisþari auk þess sem framleiðslan þeirra er stödd á gamla hafnarsvæðinu við út við Granda í vesturbæ Reykjavíkur. Ljósmynd/Aðsend
Íslenska ginið Marberg hlaut á dögunum gullverðlaun frá London Spirits …
Íslenska ginið Marberg hlaut á dögunum gullverðlaun frá London Spirits Competition. Ljósmynd/Aðsend
Birgir Már hefur fengið 8 verðlaun á síðustu 3 árum …
Birgir Már hefur fengið 8 verðlaun á síðustu 3 árum fyrir framreiðslu sína á Marberg-gininu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert