Nói Síríus eru búnir að bæta vinsælu Nóa Kropps-línuna sem margir hafa beðið eftir enda orðin hefð hvert sumar.
Nýjasta viðbótin í flóruna er Nóa Kropp með saltkaramellukurli og íslensku sjávarsalti. Þessi nýja útgáfa, sem kemur í takmörkuðu magni, er blanda af klassísku Nóa Kroppi, ríkulegri saltkaramellu og íslensku sjávarsalti að því er fram kemur í tilkynningu frá Nóa og Síríus.
„Við erum ótrúlega spennt að kynna þessa nýjung – hún er byggð á einni vinsælustu vöru okkar og hefur nú fengið enn meiri dýpt með karamellu og íslensku sjávarsalti sem liggja utan á kúlunum,“ segir Birna María Másdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus.
Vörunni var gefin hæsta einkunn af bragðprófunarhópi Nóa Síríus á síðasta ári og fékk strax mikla hrifningu fyrir fullkomna samsetningu af sætu og söltu bragði. „Bragðprófunarhópur okkar fékk tækifæri til að smakka vöruna í blindu bragðprófi á síðasta ári. Það er óhætt að segja að varan hafi fengið yfirgnæfandi jákvæð viðbrögð, sem gefur okkur sterka vísbendingu um að þetta sé vara sem verður vel tekið,“ segir Birna María enn fremur. Hún bætir við að fyrirtækið hafi auglýst eftir áhugasömum aðilum í Smakkarahóp Nóa Síríus og af rúmum 4.000 umsóknum hafi 60 aðilar hreppt sæti í hópnum.
Skapast hefur mikil umræða á samfélagsmiðlum um nýja Nóakroppið og Birna nefnir að fyrirtækið hafi fengið yfir þúsund ágiskanir frá viðskiptavinum um bragðið. „Við munum örugglega nýta þessar frábæru ágiskanir fyrir framtíðarvöruþróun,“ segir hún.
Birna fullvissar að viðskiptavinir verði ekki fyrir vonbrigðum með nýju Nóa Kropp: „Þetta er súkkulaðidraumur fyrir öll sem elska samspil sæts og salts bragðs – og við hlökkum til að leyfa viðskiptavinum okkar að njóta nýju tegundarinnar af Nóa Kroppi.“
Nóa Kropp með karamellukurli og sjávarsalti verður fáanlegt í öllum helstu verslunum um allt land frá og með deginum í dag, miðvikudag, á meðan birgðir endast.