Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt undir nafninu Jana, töfraði fram þetta girnilega sushisalat á dögunum sem hefur heldur betur slegið í gegn.
Samsett mynd
Kristjana Steingrímsdóttir heilsumarkþjálfi, betur þekkt undir nafninu Jana, töfraði fram þetta fljótlega og próteinríka sushisalat fyrir fylgjendur sínar á Instagram á dögunum og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Salatið þykir alveg dásamlega gott og það tekur enga stund að gera það. Með hækkandi sól finnst mörgum kærkomið að fara yfir í léttari rétti til að gæða sér á.
Sushisalat að hætti Jönu
Fyrir 2
- ½ bolli grísk jógúrt
- 1 msk. tamari eða sojasósa
- 1 tsk. - 1 msk. Sriracha, fer eftir smekk hvers og eins
- 120 g túnfiskur, niðursoðinn
- 1 bolli agúrka í teningum
- ½ bolli Edamame-baunir ( má sleppa en frábært að nota frosnar og þýða)
- ½ bolli gulrætur, rifnar
- 2 msk. sesamfræ
- Smá þari, klipptur í strimla
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið saman í box með loki, lokið og hristið vel saman.
- Berið fram í skál eða setjið í 2 litlar skálar á fæti eftir smekk og njótið.