Döðlugott sem fullkomið er að töfra fram á góðum frídegi

Döðlugott með súkkulaðiskreytingu sem er mjúkt, sætt og smá djúpt …
Döðlugott með súkkulaðiskreytingu sem er mjúkt, sætt og smá djúpt á bragðið, með létt beiskjulegan súkkulaðitón sem fullkomið er að njóta. mbl.is/Eyþór

Döðlugott með súkkulaðiskreytingu sem er mjúkt, sætt og smá djúpt á bragðið, með létt beiskjulegan súkkulaðitón sem bætir við bæði áferð og útlit. Fullkomið dæmi um hvernig einfalt getur orðið ómótstæðilegt og þetta er fullkomið til að galdra fram á góðum frídegi.

Heiðurinn af þessu dýrindis döðlugotti á enginn annar en Árni Þorvarðarson, bakari og fagstjóri við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi.

Hann veit vel að stundum þarf ekkert meira en fá hráefni og góða hugmynd til að búa til eitthvað ótrúlega gott. Þetta döðlugott er dæmi um það – silkimjúkt, djúpt í bragði og með örlitlu salti sem kallar fram allt það besta úr döðlunum. Sætan fær að njóta sín, en saltið bætir við jafnvægi og smá karakter. Það passar bæði sem smá sætur biti með kaffinu, með ostum, eða jafnvel sem eftirréttur í einfaldari búningi. Einfalt, fallegt og ótrúlega gott – rétt eins og það á að vera.

Árni Þorvarðarson kann að gleðja sína í gegnum magann.
Árni Þorvarðarson kann að gleðja sína í gegnum magann. mbl.is/Eyþór

Döðlugott með súkkulaðiskreytingu

  • 560 g döðlur
  • 360 g smjör
  • 165 g púðursykur
  • 100 g Rice Krispies
  • 1 msk. salt

Skreyting

  • 150–200 g dökkt súkkulaði
  • 50 g hvítt súkkulaði

Aðferð:

  1. Hitið döðlur, smjör og sykur í potti.
  2. Hrærið þar til mjúkt.
  3. Bætið Rice krispies og salti við.
  4. Setjið í form og þjappið niður.
  5. Bræðið súkkulaði, smyrjið yfir og dreypið hvítu súkkulaði yfir í renndur.
  6. Látið stífna og skerið í bita.
  7. Berið fram þegar ykkur langar að gleðja vini og vandamenn með sælgæti sem gleður sálina.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert