Danskir dagar eru orðnir ómissandi hluti af vorinu í verslunum Hagkaups og hafa í rúma þrjá áratugi fært íslenskum viðskiptavinum ekta danskar kræsingar og nýjungar.
„Nú fögnum við 31. skipti sem þessi vinsæla matarhátíð er haldin – og eins og ávallt er mikils að vænta. Danskir dagar fara fram dagana 2.–11. maí næstkomandi og af því tilefni fyllast verslanir Hagkaups af völdum dönskum matvörum og sætum freistingum sem alla jafna eru ekki fáanlegar hérlendis,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups.
„Á boðstólum verður úrval af ekta dönsku smørrebrød, pylsum, steikum, salötum, ostum, spægipylsum og ljúffengu sælgæti. Meðal þess sem má ekki láta framhjá sér fara eru koldskål með kammerjunker, grófhökkuð lifrarkæfa, súkkulaðiálegg, marzipanbrauð frá Anthon Berg – og auðvitað nýbakaðir kanilsnúðar, sjónvarpskaka og fleiri danskir hefðarréttir,“ bætir Sigurður við.
„Við leggjum sérstaka áherslu á upplifun í verslunum og ætlum að gera Danska daga 2025 einstaklega lifandi og eftirminnilega. Í tilefni hátíðarinnar verður boðið upp á skemmtilega viðburði og smakk í völdum verslunum, þar sem gestir geta kynnst dönsku vöruúrvali af eigin raun og notið góðrar stemningar í leiðinni,“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups.
Þriðjudaginn 6. maí næstkomandi verður boðið upp á danskar pylsur í hádeginu í Hagkaup í Skeifunni auk þess sem inni í versluninni verður lukkuhjól og gleði í boði Toms. Seinni partinn þann sama dag verður boðið upp á Danskt sumarkvöld með snyrtivöruframleiðandanum GOSH Copenhagen í Hagkaup í Smáralind. Þar fá gestir tækifæri til þess að læra skemmtileg förðunarráð fyrir sumarið með þessu frábæra danska snyrtivörumerki.
„Miðvikudaginn 7. maí næstkomandi verður svo matgæðingurinn Helga Gabríela í verslun okkar í Kringlunni með kynningu og smakk á ljúffengu dönsku smørrebrød sem sælkerar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara,“ segir Eva Laufey að lokum og hlakkar til að taka á móti gestum á Dönskum dögum.