Reynir Hólm Harðarson og Baldwin Maack Sigurðarson sem báðir eru kokkar, opnuðu í vetur glænýjan sushistað, Oshi, í Iðunni, nýju mathöllinni á Akureyri við Glerártorg sem hefur notið mikilla vinsælda síðan.
„Við vinirnir fengum kjörið tækifæri til að skjóta niður rótum fyrir norðan og stukkum á það saman, enda langþráður draumur að byggja upp eigin rekstur og leyfa hugmyndafluginu að ráða förinni. Jafnframt er andrúmsloftið á Akureyri frábært, hér er gott að vera og gaman að vera þátttakendur í veitingaflórunni þar sem við leggjum okkar af mörkum til að skapa góða stemningu og reiða fram framúrskarandi rétti,“ segir Reynir með bros á vör.
Er einhver saga bak við veitingastaðinn ykkar, tilurð hans?
„Nei, í raun og veru ekki, það má samt segja að spennan og hugmyndin um að taka á móti fólki og gera sitt allra besta til að mæta þörfum þeirra og ánægju sé segullinn í þessu umhverfi. Við erum bara tveir ástríðufullir kokkar sem náum vel saman og elskum að gera sælkeramat. Oshi er konsept þar sem við getum tengst við aðra ástríðufulla fagmenn sem hafa sama áhuga á að gera einfalda og bragðgóða upplifun,“ segir Reynir.
Hvaðan kemur nafnið á staðnum?
„Oshi er japanska orðið yfir eitthvað sem er nýtt og spennandi. Það á sennilega best við um okkar starfsemi, að hafa tækifærið til að breyta til, nýta sköpunarhæfni og byggja ofan á reynsluna með aukinni þekkingu og færni í matargerð,“ bætir Baldwin við.
Hverjir eru helstu áhersluþættir ykkar í sushi-gerðinni?
„Ferskt hráefni og jafnvægi í bragðsamsetningu. Okkar markmið miðast ávallt að því að fólk gangi ánægt frá borði og vilji gera sér ferð aftur í skemmtileg matarævintýri til okkar, það er upplifunin sem við leitumst eftir.“
Hver er leyndardómurinn á bak við gott sushi?
„Ferskleiki, ástríða og gott val á hráefnum. Þetta eru verkfærin sem við trúum á til að skapa gott jafnvægi í brögðum, góða áferð og ánægju.“
Sushi-ið hjá þeim félögum nýtur mikilla vinsælda þessa dagana og rýkur út eins og heitar lummur.
„Við viljum halda því fram að við séum að koma með nýja byltingu í sushi-gerð á Íslandi. Sterkar framtíðarhugsjónir og ástríða getur framkallað hinar ýmsu bragðsamsetningar og við leggjum upp úr að bjóða upp á frábærar matarupplifanir,“ segir Reynir enn fremur.
Sá biti sem hefur notið mestrar hylli matargesta er Saku, Saku. „Það er djúpsteikta sushi-rúllan okkar. Hún hefur verið mjög vinsælfrá opnun og fengið frábær viðbrögð,“ segir Reynir.
„Akureyringar hafa tekið mjög vel í mathöllina og við erum að sjá mikla aukningu á viðskiptavinum í höllinni á hverjum degi. Við erum meyrir og glaðir yfir þeim móttökum sem við höfum fengið og þakklátir fyrir allt það frábæra fólk sem hefur mótiverað okkur og lagt leið sína til okkar,“ bætir Baldwin við.
Félagarnir eru stöðugt með matseðilinn í þróun og ætla sér að halda áfram að koma með nýjungar sem ekki hafa sést. „Við erum bara rétt að byrja og erum með hliðarseðil þar sem við erum alltaf að bjóða upp á eitthvað nýtt og spennandi. Það er lykilþáttur í okkar huga,“ segja félagarnir að lokum.