Norðlendingar hafa nú eignast sína eigin mathöll en þar var Iðunn opnuð fyrir fjórum mánuðum. Guðmundur G. Pétursson, einn eigenda, stendur þar í ströngu enda metnaður mikill að bjóða á fjölbreyttan mat á alvöru veitingastöðum.
Á Glerártorgi á Akureyri hefur verið opnuð mathöllin Iðunn og kunna heimamenn og gestir vel að meta þessa nýjung. Þar má finna Oshi, sem sérhæfir sig í sushi og asískum götumat; Retro chicken, þar sem djúpsteiktur kjúklingur er á boðstólum; mexíkóska staðinn Fuego taqueria; Strýtuna, kaffihús og kokteilbar með skandinavísku ívafi, og Pizza Popolare, sem líkt og nafnið gefur til kynna er pítsustaður og bistró sem mun sérhæfa sig í kjöti og fiski. Guðmundur G. Pétursson, einn eigenda Iðunnar, segir mathöllina kærkomna viðbót við veitingahúsaflóru Akureyrar.
Guðmundur, sem er reyndur matreiðslumaður, er veitingamaður í dag og rekur Iðunni ásamt Aroni Frey Lárussyni. Ljóst að fjölbreytnin er mikil.
„Ég var kokkur í einhver tuttugu ár; hér heima, á Ítalíu og í Noregi. Ég hætti svo þegar dóttir mín fæddist og fór að flytja inn áfengi og matvöru. Ég var þá enn inni á veitingastöðum en gat farið; þetta voru ekki lengur fjórtán tíma vaktir. Þetta er ungra manna starf,“ segir Guðmundur og brosir.
„Svo var Pósthúsið opnað og ég hafði alltaf gengið með þá hugmynd í maganum að opna pítsustað og stofnaði þá staðinn Pizza Popolare þar,“ segir Guðmundur og bætir við að covid hafi vissulega boðið upp á áskoranir.
„Popolare gekk vel og við vorum beðnir að koma til Akureyrar og opna þar,“ segir Guðmundur.
„Brauð, deig og desertar, nokkuð sem krefst mikillar þolinmæði, hefur aldrei verið mín sterka hlið þannig að við fengum til okkar alvöru pítsubakara frá Ítalíu,“ segir Guðmundur, en þess má geta að staðurinn hefur komist á lista yfir bestu pítsustaði Evrópu.
„Við opnuðum Iðunni 21. desember, núna fyrir fjórum mánuðum, sem er auðvitað snarklikkað; Reykvíkingar að opna mathöll á Akureyri nokkrum dögum fyrir jól. Ég get sagt þér það að þetta er það erfiðasta sem við höfum gert. Við unnum fjórtán til sextán tíma á dag í tvo mánuði fyrir opnun og erum auðvitað að reka veitingastað í bænum líka,“ segir Guðmundur og segir þá félaga hafa skipst á að vera fyrir norðan.
„Mathöllin er í norðurendanum á Glerártorgi og ráðist var í heilmiklar framkvæmdir og búðir færðar til. Þarna eru sæti fyrir 166 manns á fimm veitingastöðum og einu kaffihúsi. Þetta eru alvöruveitingastaðir en ekki básar,“ segir Guðmundur og segir fólk helst kvarta yfir verðinu en segir matinn ekki dýran samanborið við mat á sambærilegum stöðum á Akureyri og í Reykjavík.
„Við erum núna að komast í gegnum þrjá erfiðustu mánuði ársins. Móttökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum. Nú verður spennandi að sjá hvernig sumarið verður hjá okkur. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og gaman að koma með eitthvað nýtt í bæinn, en til dæmis vorum við sérstaklega beðnir að vera með stað með djúpsteiktum kjúklingi. Það er mikil uppbygging á Glerártorgi og til að mynda var opnaður þar pílustaðurinn Skor sem er mjög vinsæll. Það koma oft hópar í pílu og í svo í mat til okkar.“
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.