Heitasta grillsósan í dag

Chimichurri-sósan sem allir elska með grilluðum kræsingum.
Chimichurri-sósan sem allir elska með grilluðum kræsingum. mbl.is/Sjöfn

Sumarið er komið og ilmurinn af grilluðum kræsingum er í loftinu. Ég er búin að vera iðin við að grilla síðan um páskana, bæði steikur og fisk og gott meðlæti eins og grænmeti. Sú grillsósa sem nýtur mestrar vinsælda á mínu heimili er chimichurri-sósan mín sem ég geri í mortéli þar sem uppistaðan er ferskar kryddjurtir og góð ólífuolía. 

Hún passar vel með nánast öllum grilluðum mat og það er hægt að leika sér með magnið af kryddjurtunum sem sett er út í. Þá er hægt að bæta aðeins við af ólífuolíu eftir smekk en það skiptir miklu máli að vera með góða ólífuolíu.

Ég mæli með því að þið prófið þessa, þetta er heitasta grillsósan í dag og allir elska þessa sem hafa smakkað hana hjá mér.

Þessa chimichurri-sósu er auðvelt að gera í mortélinu og bragðið …
Þessa chimichurri-sósu er auðvelt að gera í mortélinu og bragðið á kryddjurtunum nýtur sín enn betur. mbl.is/Sjöfn

Chimichurri-sósan sem allir elska

  • 1 stk. skalottlaukur, smátt saxaður
  • 1 stk. rautt chili, smátt saxað
  • ½ stk. grænn chili
  • 2 litlir hvítlaukar, skornir í þunnar sneiðar eða smáa bita
  • ½ bolli rauðvínsedik
  • 1 tsk. saltflögur, má vera meira
  • ½ bolli fínsaxað ferskt kóríander, lauf og stilkar
  • ¼ bolli fínt söxuð fersk steinselja, lauf og stilkar
  • 2 msk. fínt skorin fersk óreganólauf/greinar
  • 1-2 greinar rósmarín, smátt saxað
  •  ¾ bolli ólífuolía frá Olifa

Aðferð:

  1. Blandið saman skalottlauk, chili, hvítlauk, rauðvínsediki, grófum pipar og saltflögum í mortéli og merjið vel saman.
  2. Látið sitja í 10 til 15 mínútur.
  3. Hrærið síðan saman kóríander, steinselju, rósmarín og óreganó og bætið við ofni í mortélið.
  4. Þeytið ólífuolíuna út í með gaffli.
  5. Setjið dressinguna í gott ílát eða skál og geymið í kæli fyrir notkun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert