Súkkulaði- og kirsuberjaþeytingur sem gerir daginn betri

Súkkulaði- og kirsuberjaþeytingur sem gerir alla daga betri.
Súkkulaði- og kirsuberjaþeytingur sem gerir alla daga betri. Ljósmynd/Hildur Ómarsdóttir

Hildur Ómars matarbloggari gerði þennan gómsæta og næringarríka súkkulaðisþeyting á dögunum sem er kærkomið að njóta í sumar.

Kakóbragðið kemur sterkt í gegn á meðan kirsuberin gera hann ferskan sem gerir góðan grunn að þeyting sem hægt er að bústa upp enn þá meira með því að bæta í hann ofurfæðum sem þið viljið fá inn í daginn. Chaga, moringa, engifer og hampfræ eru til að mynda hráefni sem eiga það til að fljóta með í þessum grunni hjá Hildi. Fyrir þá sem vilja þykkari þeyting er tilvalið að nota frosna banana í blönduna í stað ferskra.

Súkkulaði- og kirsuberjaþeytingur

Fyrir 2

  • 2 bananar
  • 220 g frosin kirsuber
  • 2 msk. lífrænt kakó
  • 5 ferskar steinhreinsaðar döðlur
  • 2-2,5 dl ósykruð möndlumjólk
  • 1 msk. möndlusmjör (valfrjálst)

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í blandara og blandið vel saman.
  2. Hellið í viðeigandi glös og njótið.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert