Haraldur Arnarson atvinnumaður í MMA og yfirþjálfari í Kickbox, alla jafna kallaður Halli, á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni sem er hinn girnilegasti.
Hann hefur ástríðu fyrir starfinu sínu og til að ná sem bestum árangri sem keppnismaður og þjálfari hugar hann vel að mataræðinu. Hann er líka hamingjusamur í einkalífinu og leggur metnað sinn í að rækta hvorutveggja vel, starfið og einkalífið.
„Ég bý með yndislegu kærustunni minni, Höllu Dagnýju Úlfsdóttur, og hundinum okkar, Bellu. Við erum nýbúin að kaupa okkur íbúð í Laugardalnum þar sem við höfum komið okkur vel fyrir og erum hamingjusöm þar,“ segir Halli þegar hann er spurður út í einkalífið.
Forréttindi að vinna við það sem maður elskar
Reykjavík MMA er hans annað heimili og þar líður honum líka vel. „Ég eyði líklegast meiri tíma þar heldur en heima hjá mér, bæði vegna vinnunnar og æfinga sem ég þarf að stunda,“ segir Halli með bros á vör.
„Ég er lærður styrktarþjálfari, með „FRC mobility specialist“ réttindi og áralanga reynslu af bardagaíþróttum. Ég keppi sem atvinnumaður í MMA fyrir hönd Reykjavík MMA og er einnig yfirþjálfari þar yfir Kickboxinu. Einnig er ég með einkaþjálfun í bardagaíþróttum og styrktarþjálfun bæði fyrir einstaklinga sem og hópa.
En ég kvarta ekki þar sem ástríðan mín liggur nákvæmlega þarna og það eru forréttindi að fá að vinna við það sem maður elskar. Bardagaíþróttir gefa manni líka mikið og eru skemmtileg og fjölbreytt hreyfing. Þannig ég mæli með því ef fólk hefur ekki prufað að kíkja á okkur upp í Reykjavík MMA og skella sér í einn prufutíma, flestir koma aftur,“ segir Halli sannfærandi.
„Mér þykir fátt skemmtilegra en að fá til mín einstaklinga í þjálfun og sjá þá sem taka áskoruninni breyta algjörlega um lífsstíl og verða betri á öllum sviðum, jafnt andlega sem og líkamlega, það er afar fallegt móment,“ bætir Halli við.
Aðspurður segist Halli ekki alltaf hafa mikinn tíma til að matreiða og því þurfi eldamennska oft og tíðum að vera einföld.
„Þar sem ég er nú oftast að þjálfa frekar seint á kvöldin er kvöldmatnum hjá okkur ávallt seinkað þangað til ég kem heim og þá er langoftast eitthvað fljótlegt matreitt. Ég er frekar auðveldur í þessum málum og gæti borðað sömu máltíðina alla daga sem væri þá hakk og egg eða ribeye. Máltíðin þarf í flestum tilvikum að innihalda kjöt og þá er ég sáttur. Sérstaklega ef stutt er í keppni að þá verða máltíðirnar frekar einsleitar og leiðingar ef svo má að orði komast,“ segir Halli og glottir.
„En fyrir utan það þá reynum við að halda mataræðinu fjölbreyttu svo allir á heimilinu séu glaðir. Þannig við ákváðum að setja smá fjölbreytni í vikumatseðilinn í þetta skiptið svo hann væri ekki bara fullur af hakki, eggjum og ribeye alla daga,“ segir Halli að lokum og hlær.
Hér kemur vikumatseðillinn sem hann og Halla Dagný settu saman og er hinn girnilegasti.
Mánudagur – Fiskréttur í kókos- og chilisósu
„Fiskur er kannski ekkert sérstaklega oft á matseðlinum okkar og mætti vel bæta úr því. En mikilvægt er að hafa þetta fjölbreytt þannig við höfum reynt að halda okkur við að byrja vikuna á einum góðum fiskrétt.“
Þriðjudagur- Heilgrillaður kjúklingur
„Við erum frekar nýlega farin að gera tilraunir með heilan kjúkling bæði inni í ofni og svo langar okkur að prufa hann á grillinu líka. Að mínu mati finnst mér þetta langbesti kjúklingurinn.“
Miðvikudagur - Flanksteik með leynikryddblöndu
„Flanksteikin hefur verið að koma afar sterk inn hjá okkur á grillinu. Þegar hún er matreidd rétt þá hittir hún beint í mark. Skemmir ekki fyrir að hún er aðeins ódýrari í innkaupum.“
Fimmtudagur – Hakkréttur af betri gerðinni
„Eftir að við fundum þessa uppskrift þá hefur þetta verið smá svona guilty pleasure hjá okkur. Þessi er rosalega góður en kannski ekki alveg sá hollasti, sérstaklega þar sem erfitt er að stoppa þegar byrjað er og er hann nú oftast kláraður.“
Föstudagur – BBQ-borgari
„Góður hamborgari klikkar seint og fær að vera föstudagstrítið þessa vikuna.“
Laugardagur – Rib-Eye steik með gráðostasmjöri
„Vikan er svo ekki fullkomnuð nema með Rib-Eye steik. Sem er jú, uppáhalds maturinn minn, og klikkar aldrei í mínum bókum.“
Sunnudagur – Lambafille með rjómalagaðri sveppasósu
„Við endum svo helgina á afar bragðgóðu lambafille. Þessi uppskrift kom á óvart og fór afar vel í okkur.“